Útlit er fyrir rólegt veður um helgina. Búast má við hægri breytilegri vindátt eða hafgolu á landinu. Víðast hvar verður þurrt og bjart með köflum en skýjað sunnanlands. Þar má einnig búast við vægum skúrum, sérstaklega síðdegis.
Möguleiki er á þokubökkum við norður- og austurströnd landsins. Hiti yfirleitt á bilinu 10 til 17 stig. Hlýjast á Vesturlandi.
Á mánudaginn bætir aðeins í vind nærri suðurströnd landsins og þá má búast við smávegis vætu af og til á þeim parti landsins. Hiti fer þá upp í allt að 18 til 19 stig þegar best lætur.