Róbert réðst á 13 ára gamlan dreng

Róbert Bjargarson hefur verið dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir líkamsárás, hótanir og brot gegn barnaverndarlögum vegna atviks sem átti sér stað við Hamraborg í Kópavogi í apríl 2023.
Samkvæmt dóminum réðst Róbert að tæplega 14 ára dreng eftir að hafa farið á vettvang til að ræða við hann um samskipti hans við son sinn. Fyrir dómi viðurkenndi ákærði að hafa misst stjórn á skapi sínu, gripið í úlpu drengsins og ýtt honum niður á bekk. Dómurinn taldi hins vegar sannað að hann hefði gengið lengra, meðal annars sveigt bak drengsins aftur yfir bekkinn, tekið hann hálstaki og haft uppi alvarlegar hótanir.
Vitni lýstu Róberti sem mjög reiðum og stjórnlausum. Starfsmaður barnaverndar, sem varð vitni að hluta atviksins, sagði hann hafa öskrað á drenginn og þrýst honum aftur yfir bekk. Annað vitni sagði að Róbert hefði hótað að „láta hann hverfa“.
Drengurinn leitaði á bráðamóttöku sama dag og greindust hjá honum yfirborðsáverkar á hálsi og baki. Þá lýsti hann miklum ótta í kjölfar árásarinnar og sagði hana hafa haft veruleg áhrif á líðan sína.
Dómurinn taldi háttsemi Róbert til þess fallna að vekja ótta um líf, heilbrigði og velferð barnsins. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til þess að Róbert hafði ekki áður gerst sekur um refsiverðan verknað og að nokkur dráttur hefði orðið á málinu.
Hann var jafnframt dæmdur til að greiða drengnum 400 þúsund krónur í miskabætur auk rúmlega hálfrar milljónar króna í málskostnað.