Stuðningur við ríkisstjórnina dalar og mælist í fyrsta sinn undir fimmtíu prósentum samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallups. Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi og Vinstri græn ná inn manni.
Samfylkingin mælist með mest fylgi eða tæp 29 prósent. Sjálfstæðisflokkur mælist með 21 prósent og bætir við sig tveimur prósentustigum frá síðustu könnun. Miðflokkurinn mælist með tæp 19 prósent og Viðreisn tæp 11 prósent. Þrír flokkar mælast með rétt rúmlega fimm prósenta fylgi, Framsóknarflokkurinn, Flokkur fólksins og Vinstri græn. Aðrir flokkar mælast með minni stuðning.
Ríflega sex prósent myndu skila auðu eða ekki kjósa og 13 prósent tóku ekki afstöðu.
Samfylkingin fengi samkvæmt þessu 20 þingmenn, Sjálfstæðisflokkurinn 14, Miðflokkurinn 13, Viðreisn 7, Framsóknarflokkurinn þrjá eins og Flokkur fólksins og Vinstri græn. Þetta er í fyrsta sinn síðan í mars 2024 sem Vinstri græn ná inn manni.
Áfram dregur úr stuðningi við ríkisstjórnina sem nýtur nú 49 prósenta stuðnings og er þetta í fyrsta sinn frá kosningum sem stuðningur fer undir 50 prósent. Ríkisstjórnarflokkarnir þrír mælast með 30 þingmenn og samkvæmt þessu væri ríkisstjórnarmeirihlutinn fallinn.
Niðurstöðurnar eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. - 29. apríl 2026. Heildarúrtaksstærð var 10.484. Þátttökuhlutfall var 40,4 prósent. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,5-1,5 prósent. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr viðhorfahópi Gallup.