Ríkissaksóknari hefur fellt úr gildi ákvörðun héraðssaksóknara um að falla frá saksókn gegn Mohamad Weti vegna árásar á Hauk Ægi Hauksson og lagt fyrir embættið að gefa út ákæru. Þetta sýna gögn sem Nútíminn hefur undir höndum.
Weti er gefið að sök að hafa slegið Hauk í höfuðið með 53 sentimetra langri tréspýtu með þeim afleiðingum að Haukur hlaut kúlu og rispu hægra megin á enni.
Atvikið átti sér stað eftir að ung stúlka, stjúpdóttir Hauks á þeim tíma, hafði sagt frá því að Weti hafi brotið á henni kynferðislega.
Weti var síðar sakfelldur fyrir kynferðisbrotið gegn stúlkunni.
Vildi ekki að hann færi af vettvangi
Nútíminn fjallaði um málið í janúar 2025 þegar Haukur ræddi atburðarásina í viðtali við Frosta Logason.
Haukur H segist ranglega ákærður fyrir tilraun til manndráps
Haukur sagði þá að stúlkan, sem honum tengdist, hefði hringt í hann og sagt að Weti hefði brotið gegn sér kynferðislega. Þegar stúlkan var komin heim hafi Haukur viljað að Weti biði eftir lögreglu en Weti hafi ekki viljað það.
Að sögn Hauks réðist Weti einnig að vinkonu hans sem var á staðnum og Haukur greip þá inn í. Weti hafi í kjölfarið tekið upp kylfu og slegið Hauk í höfuðið.
„Ég var sleginn í höfuðið með kylfu, sem næstum rotaði mig,“ sagði Haukur.
Weti var síðar dæmdur fyrir kynferðisbrotið gegn stúlkunni sem var upphafið að atburðarásinni.
Héraðssaksóknari vildi falla frá málinu
Héraðssaksóknari ákvað 29. apríl síðastliðinn að falla frá saksókn gegn Weti vegna árásarinnar á Hauk.
Ástæðan var sú að Weti hafði þegar verið dæmdur í tólf mánaða fangelsi af Landsrétti í nóvember 2025 vegna annars brots. Þar sem árásin á Hauk átti sér stað áður en sá dómur féll taldi héraðssaksóknari hana falla undir reglur um hegningarauka og að ólíklegt væri að Weti yrði gerð frekari refsing þótt hann yrði sakfelldur.
Mat embættisins var að ólíklegt væri að Weti yrði gerð frekari refsing þótt hann yrði sakfelldur fyrir árásina á Hauk.
Þá var einnig horft til þess að rúmlega þrjú ár voru liðin frá atvikinu.
Oddgeir Einarsson lögmaður kærði ákvörðunina til ríkissaksóknara fyrir hönd Hauks og krafðist þess að hún yrði felld úr gildi.
Ríkissaksóknari ósammála
Ríkissaksóknari fór yfir öll gögn málsins, þar á meðal upptökur úr búkmyndavélum lögreglumanna á vettvangi.
Embættið tekur undir það mat að meint árás Weti geti varðað við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga þar sem hún er talin hafa verið sérlega hættuleg. Brot gegn ákvæðinu getur varðað allt að 16 ára fangelsi.
Ríkissaksóknari bendir jafnframt á að Weti hafi áður verið sakfelldur fyrir ofbeldisbrot og að fyrri sakaferill hans geti haft áhrif á refsingu.
Með hliðsjón af alvarleika hinnar meintu árásar, sakaferli Weti og refsingu í sambærilegum málum telur ríkissaksóknari ekki unnt að taka undir mat héraðssaksóknara um að ólíklegt sé að Weti verði dæmdur til frekari refsingar.
Ákvörðun héraðssaksóknara hefur því verið felld úr gildi og embættinu gert að höfða sakamál gegn Weti vegna árásarinnar á Hauk.