Í tilkynningu þess efnis á vef Stjórnarráðsins segir að á árunum 2016 og 2017 hafi ýmsir flokkar ellilífeyris verið sameinaðir í einn flokk og greiðslur úr almannatryggingakerfinu skertar um 45 prósent hjá þeim sem fengu meira en 25 þúsund krónur á mánuði frá atvinnutengdum lífeyrissjóðum.
Kærendur í málinu hafi talið að íslenska ríkið hefði með þessum breytingum brotið gegn banni mannréttindasáttmála Evrópu við mismunun viðauka við sáttmálann.
Mannréttindadómstóllinn hafi vísað málinu frá þar sem ekki hafi verið sýnt fram á að kærendur hefðu orðið fyrir mismunun sem bryti gegn ákvæði sáttmálans.