Íslenska ríkið hefur tekið ákvörðun um að áfrýja dómi héraðsdóms í plastbarkamálinu til Landsréttar, þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi íslenska ríkið skaðabótaskylt vegna plastbarkaaðgerðar sem framkvæmd var á Andemariam Teklesenbet Beyene á Karolinska háskólasjúkrahúsinu árið 2011. Í dómnum sem vakti mikla athygli var háttsemi Tómasar Guðbjartssonar, læknis Landspítala, sem kom að meðferðinni og vísaði sjúklingnum í hana, talin ein af orsökum tjónsins og á henni bæri íslenska ríkið vinnuveitendaábyrgð.
Sjá frétt: Íslenska ríkið bótaskylt vegna vítaverðrar framgöngu Tómasar í plastbarkamálinu
Læknirinn Paolo Macchiarini, sem framkvæmdi aðgerðina á Andemariam í Svíþjóð var árið 2023 sakfelldur fyrir að hafa valdið honum og tveimur öðrum einstaklingum sem undirgengust sambærilega aðgerð stórkostlegu líkamstjóni af ásetningi.
Málið vakti á sínum tíma heimsathygli og hefur verið mikið rannsakað, bæði hér á landi og í Svíþjóð. „Mikilvægt er að mati ráðuneytisins að svo sérstakt og alvarlegt mál fái umfjöllun á æðra dómstigi og að niðurstaða þess og röksemdir teljist eins óumdeildar og unnt er, ekki einungis fyrir þetta mál heldur sem leiðarljós fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi og heilbrigðisstarfsmenn til framtíðar,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.