Hlutir sem fundust í tveimur bílum í aðgerð lögreglu reyndust ekki alvöru skotvopn. Börkur Árnason, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, segir að vopnin hafi verið nákvæmar eftirlíkingar.
„Þetta voru ekki virk skotvopn en mjög nákvæmar eftirlíkingar,“ segir varðstjórinn.
Lögreglan á Norðurlandi eystra handtók fimm á Akureyri síðdegis í gær eftir að tilkynning barst um grun um vopnaburð. Tveir bílar voru stöðvaðir og lögregla sagði skotvopn hafa fundist í þeim báðum. Fimmmenningarnir voru fluttir á lögreglustöð þar sem þeir voru teknir til yfirheyrslu. Þeir voru síðan látnir lausir í gærkvöldi að skýrslutöku lokinni. Varðstjóri vildi ekki tjá sig um aldur hinna handteknu.
Í frétt Vísis segir að hin meintu skotvopn hafi í raun verið leikfangabyssur sem líkja eftir þýsku hríðskotabyssunni MP5. Þær séu með rauðmálað hlaup sem merkir að skotvopn sé ekki alvöru. Er það haft eftir einstaklingi sem gætir hagsmuna eins drengjanna sem voru handteknir.