Verjendur fimm sakborninga sem ákærðir voru fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi eftir slys í hoppukastala á Akureyri fyrir fimm árum fóru í dag fram á frávísun málsins. Það er í þriðja sinn sem látið er reyna á það.
Fyrsta dag júlímánaðar 2021 barst útkall til viðbragðsaðila á Akureyri. Hoppukastalinn Skrímslið, sem var nær tívolítæki að stærð, hafði fokið upp að hluta í vindhviðu. Það varð til þess að börnin sem í honum voru köstuðust til, sum skullu utan í hvert annað en önnur lentu á gangstétt utan hans. Sjö fóru á slysadeild og fjögur börn slösuðust alvarlega.
Í upphafi árs 2023 var loks gefin út ákæra. Fimm menn voru sagðir ábyrgir fyrir því sem gerst hafði; tveir á vegum handknattleiksdeildar KA, framkvæmdastjóri Ævintýralands-Perlunnar sem átti kastalann auk tveggja manna sem komu að uppsetningu.
Allir lýstu þeir sakleysi strax í fyrsta þinghaldi. Síðan eru liðin rúm þrjú ár og enn hefur málið ekki verið tekið til aðalmeðferðar, en verjendurnir fóru í dag fram á frávísun málsins í þriðja sinn.
Ákæran óskýr og ekki í samræmi við það sem gerðist
Það byggðu þeir að mestu á að ákæra í málinu væri óskýr, samræmdist ekki gögnum málsins og rannsókn lögreglu hefði verið ófullnægjandi. Saksóknari hefur ekki farið leynt með að honum þyki verjendur hafa lagt sig alla fram við að tefja málið – en verjendur hafa ekki heldur farið ofan af því að ákæruvaldið hafi undirbúið það illa. Rannsóknin hafi verið slök og ákæran einnig.
Í ákæru er til dæmis talað um að kastalinn hafi hvorki verið nógu vel festur niður né eftirlit nægjanlegt. Orðalagið „nægjanlegt“ er meðal þess sem verjendum þótti of huglægt til að hægt væri að verjast því með góðu móti:
„Það sem einum þykir nægjanlegt þykir öðrum ekki,“ sagði Ragnar Björgvinsson, verjandi framkvæmdastjóra Ævintýralands-Perlunnar. Þá vísaði hann til mála þar sem svipað orðalag hafði verið forsenda þess að málum hefði verið vísað frá dómi.
Þrjár matsgerðir en niðurstaða enn víðs fjarri
Í tvö skipti hefur dómari ákveðið að vísa málinu ekki frá - en síðan eru komnar nýjar matsgerðir. Það þýðir að nýir dómkvaddir matsmenn, sérfræðingar sem rýna í gögn málsins, hafa gefið nýtt álit og hafa nú í þrígang gefið út mat á hvað hafi gerst þegar Skrímslið fauk.
Síðan er líka kominn nýr dómari, verjendur höfðu áður reynt að fá Hlyn Jónsson metinn vanhæfan til að dæma í málinu. Landsréttur taldi hann hæfan, en gerði þó athugasemdir við vinnulag hans að hluta.
„Verður ekki skorið úr um sekt eða sýknu hér“
Settur dómari á Norðurlandi eystra er nú Arnbjörg Sigurðardóttir. Hún stöðvaði ítrekað málflutning bæði verjenda og saksóknara í dómsal í dag, þar sem þeir eyddu miklum tíma í að ræða efnisatriði málsins - hvað hefði gerst og hver bæri ábyrgð.
„Það verður ekki skorið úr um sekt eða sýknu hér,“ sagði dómari. Eins stoppaði hún frammíköll saksóknara þegar hann gerði athugasemdir við málflutning verjenda og minnti á að hún stýrði þinghaldinu.
Það er ekki í augsýn að neinn verði sakfelldur eða sýknaður – heldur kveður dómari á næstu dögum eða vikum upp úrskurð sinn um hvort málið verði fellt niður eða hvort loks fari fram aðalmeðferð.