Málið er í rannsókn.
Lögregla hafði einnig afskipti af stúlku yngri en 18 ára sem var með fíkniefni. Var málið afgreitt með aðkomu foreldra og barnaverndar. Þá var manni í annarlegu ástandi vísað frá fjölbýlishúsi og tilkynnt um rúðubrot, sem telst upplýst.
Lögreglu barst einnig tilkynning um ungmenni á „krossurum“ innan um börn á leiksvæði. Tvístruðust þau þegar þau urðu vör við lögreglu og óku hvert í sína áttina en lögregla segist hafa upplýsingar um heimilisföng hluta hópsins.
Nokkrir voru stöðvaðir í umferðinni, meðal annars tveir ökumenn sem hafa ítrekað verið stöðvaðir án réttinda og eru komnir í „þriðja sinn eða oftar“ hópinn, eins og það er orðað í tilkynningu lögreglu. Einn var sviptur ökuréttindum fyrir að aka á 124 km/klst þar sem hámarkshraði er 50 km/klst og annar kærður vegna „svigaksturs“.
Mikið viðbragð var vegna brunalyktar og brunakerfis sem fór í gang í umdæminu Kópavogur/Breiðholt. Þar reyndist hins vegar aðeins hafa brunnið í brauðrist.
Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot nafnlaust eða undir nafni hér.
Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot nafnlaust eða undir nafni hér.