Rekstur A-hluta Reykjavíkurborgar var neikvæður um rúmlega 5 milljarða króna á síðasta ári. Þetta kemur fram í ársreikningi borgarinnar sem var lagður fyrir borgarstjórn í morgun.
Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að helsta skýring neikvæðrar niðurstöðu af A-hluta sé mikil hækkun lífeyrisskuldbindinga „auk þess sem há verðbólga og óvissa á atvinnumarkaði leiðir til hægari vaxtar útsvarsgreiðslna“.
Rekstur málaflokka og þjónustu hafi verið í jafnvægi og í takt við áætlanir.
Þegar A- og B-hluti borgarinnar eru skoðaðir saman var reksturinn árið 2025 jákvæður um átta milljarða króna, sem er um 2,7 milljörðum lakari niðurstaða en 2024.
Fulltrúar meirihlutans sögðu í bókun að niðurstaðan sýndi „stöðugan og traustan rekstur þrátt fyrir utanaðkomandi áföll, svo sem verulega hækkun lífeyrisskuldbindinga og tekjufall hjá Orkuveitunni og Faxaflóahöfnum vegna rekstrarfalls Norðuráls“.
Fulltrúar minnihlutans voru ekki eins jákvæðir í bókunum sínum. Sjálfstæðismenn sögðu reksturinn ekki sjálfbæran og tímabært að ráðast á rót vandans. Fulltrúar Framsóknar bentu á að gert hefði verið ráð fyrir afgangi en þeir telja mikil tækifæri til hagræðingar.