„Já, mjög vel, það var mikið keypt á tilboðsverði í kringum jól og áramót og núna er þetta aftur að taka við sér í tengslum við kynbótasýningar og úrtökur um allt land. Auðvitað veltur fjöldi gesta að einhverju leyti á utanaðkomandi aðstæðum eins og veðri, en sérstaða þessa móts er að flestir gestanna dvelja hér hjá okkur í viku og jafnvel lengur. Þetta verður því líflegt „þorp“, sem við erum að búa til,“ segir Áskell Heiðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóri landsmótsins.
Fyrsta flokks aðstaða
En aðstaðan á Hólum, hvernig er hún? „Hún er alveg fyrsta flokks. Hún var byggð myndarlega upp fyrir mótið hér 2016 og nú höfum við bætt við nýjum upphitunarvelli og nýrri ferjuleið inn á aðalvöllinn, auk bættrar aðstöðu fyrir hreyfihamlaða til að horfa úr bílum. Lokayfirferð yfir velli stendur yfir núna auk þess sem verið er að mála, hefla plön, slá gras og setja allt í sparibúning fyrir Landsmót. Það verða alls á níunda hundrað hross sem fara í gegnum mótið hjá okkur frá sunnudegi til laugardagskvölds“, segir Áskell.
Nægt gistirými í Skagafirði
Áskell segir aðstöðu fyrir gesti mótsins vera mjög góða. „Við buðum fólki upp á að kaupa afmarkaða reiti með rafmagnstengli fyrir hjólhýsi og ferðavagna, þeir reitir seldust upp, þar er bara takmarkandi þáttur hversu mikið rafmagn við fáum til að spila úr. En það er nægt pláss fyrir aðra sem vilja tjalda og allir sem kaupa miða fá aðgang að tjaldsvæði án sérstaks endurgjalds. Skagfirðingar hafa verið duglegir að bjóða híbýli sín til leigu yfir mótið þannig að það er nægt framboð af gistirými, þó að auðvitað geti ekki allir búið á Hólum“, segir Áskell.
Margir hápunktar
Um 100 starfsmenn munu vinna á mótinu. Áskell segir að margir hápunktar verði. „Já, já, það verða margir hápunktar, allt eftir því hvar áhugi hvers og eins liggur. En segja má að föstudagskvöldið og laugardagskvöldið séu sett þannig upp að það verði linnulaus veisla fyrir hestaunnendur,“ segir hann og bætir við. „Við erum að vinna hér öll sem eitt að því að búa til eftirminnilega upplifun þar sem glæsilegir hestar verða númer eitt, tvö og þrjú, en líka verður lögð áhersla á gamla góða „maður er manns gaman“, það verða sveitaböll og kántrýtónleikar, fjölbreytt úrval af góðum mat, en líka notaleg stemming þar sem hægt verður að setjast niður og spjalla saman yfir góðum kaffibolla. Skagfirðingar eru að halda mótið, en við njótum krafta reynslubolta sem hafa komið að skipulagi margra Landsmóta“.