Öll spjót hafa staðið á Piu Olsen Dyhr, leiðtoga Sósíalíska þjóðarflokksins í Danmörku, undanfarna daga. Gagnrýnin snýr að því að hún réð til sín ráðgjafa sem hafði fyrir sex árum verið sakaður um kynferðislega áreitni meðan hann var við störf hjá sama flokki.
Sósíalíski þjóðarflokkurinn vann mikinn sigur í þingkosningunum í Danmörku í mars og er orðinn næststærsti flokkurinn á þingi á eftir Jafnaðarmönnum. Flokkurinn er einn fjögurra flokka í nýrri ríkisstjórn sem var mynduð í byrjun mánaðarins.
Dyhr, sem tók við embætti efnahagsráðherra í þessari ríkisstjórn, tilkynnti í síðustu viku að Thomas Nystrøm hefði verið ráðinn sem hennar nánasti aðstoðarmaður. Nystrøm var yfirráðgjafi í flokknum um skeið en var rekinn árið 2020 vegna ásakana um óeðlilega hegðun og kynferðislega áreitni.
Þessi ráðning vakti miklar deilur innan flokksins. Meðal annars krafðist Lotte Kofoed, sem var ein þeirra sem sökuðu Nystrøm um áreitni, afsökunarbeiðni frá Dyhr. Kofoed er nú sveitarstjórnarfulltrúi fyrir flokkinn. Nystrøm viðurkenndi sjálfur að hann hefði hagað sér með óviðeigandi hætti og sæi mikið eftir því. Dyhr réttlætti skipunina með því að nú væru sex ár liðin og aðstæður aðrar, þó að hún hafi tekið ásakanirnar alvarlega á sínum tíma. Hann ætti skilið annað tækifæri.
Vann fyrir flokkinn eftir að hafa verið rekinn
Nystrøm tilkynnti á laugardag að hann myndi hætta störfum. Síðustu dagar hefðu verið erfiðir fyrir hann og fjölskyldu hans og hann vildi ekki varpa skugga á starf flokksins. Daginn eftir greindi Politiken hins vegar frá því að Nystrøm hefði starfað sem utanaðkomandi ráðgjafi fyrir Sósíalíska þjóðarflokkinn eftir að hann var rekinn úr starfi frá honum. Ekki liggur fyrir hvenær og hversu mikið það var.
Þetta jók enn frekar pressuna á Piu Olsen Dyhr. Hún vék sér lengi undan því að svara spurningum fréttamanna en í dag veitti hún stutt viðtal. Þar sagði hún að hún hefði ekki ráðið Nystrøm ef hún hefði vitað allt sem hún vissi nú. Hún neitaði einnig að biðja Lotte Kofoed afsökunar. Hún vildi ekki tjá sig frekar um málið.
Fréttaskýrendur segja ýmsum spurningum enn ósvarað um þetta mál. Flokkurinn hefur til dæmis ekki enn svarað því hversu langur tími leið frá því Nystrøm var rekinn þar til hann hóf aftur störf fyrir flokkinn og hvað hann var að gera. Þó að flokkurinn segi að málinu sé lokið sé það alls ekki raunin.