Karla Johnson, sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi, er komin til Venesúela þar sem hún mun stýra verkefnum á sviði áætlanagerðar og vöktunar á aðgerðum Rauða kross-hreyfingarinnar á hamfarasvæðum jarðskjálftanna sem urðu að kvöldi 24. júní.
Skjálftarnir ollu víðtækum skemmdum og eyðileggingu í norðurhluta landsins. Staðfest dauðsföll eru yfir 3.500, fleiri þúsunda er enn saknað og hundruð fjölskylda hafa misst heimili sín og eru á vergangi.
Alþjóðlegar björgunarsveitir hættu leit að fólki, tíu dögum eftir jarðskjálftana. Þar ríkir neyðarástand, spítalar eru yfirfullir og þúsundir hafast við á götunni.
Meðal helstu áskorana sem blasa við viðbragðsaðilum á vettvangi er mikið og útbreitt tjón á innviðum, meðal annars fjarskiptakerfum.
Karla er menntuð í alþjóðasamskiptum og verkefnastjórnun og starfar nú á Evrópuskrifstofu Alþjóðasambands Rauða krossins í Búdapest. Í tilkynningu Rauða krossins kemur fram að Karla starfaði áður hún hjá Rauða krossinum á Íslandi í verkefnum tengdum flóttafólki og umsækjendum um alþjóðlega vernd. Hún hefur áður gegnt sendifulltrúastörfum fyrir Rauða krossinn.
Starf Körlu mun meðal annars felast í því að bæta bæði öflun og flæði upplýsinga svo aðstoð megi byggja á þörfum hverju sinni. Þannig er reynt að tryggja eftir fremsta megni, við mjög erfiðar og flóknar aðstæður, að bjargir berist þangað sem neyðin er mest og að fjármagn nýtist sem allra best.
Alþjóðasamband Rauða krossins hefur ráðstafað tæpum 312 milljónum íslenskra króna úr neyðarsjóði sínum til fyrstu aðgerða í landinu. Þá hefur sambandið einnig hafið neyðarsöfnun til að fjármagna frekari aðgerðir sem ljóst er að munu standa yfir næstu mánuði.
Meðal hlutverka Rauða krossins á hamfarasvæðum er að aðstoða fólk sem leitar ástvina sinna. Landsfélagið í Venesúela hefur þegar fengið vel á þriðja þúsund leitarbeiðna.