Nicusor Dan Rúmeníuforseti greindi frá því að dróninn sem flaug inn í lofthelgi landsins á föstudaginn er rússneskur af gerðinni Geran-2, samkvæmt niðurstöðum skýrslu rannsóknarhóps þarlendra sérfræðinga.
Allar áletranir á flygildinu voru með kyrillísku letri ásamt því að rafbúnaður og stjórnkerfi er sams konar og í Goran-2 drónum, að sögn forsetans. Hann segir engum öðrum en Rússum um að kenna að dróninn fór inn fyrir lofthelgina, olli tjóni og meiðslum á fólki.
Dróninn flaug inn fyrir rúmenska lofthelgi meðan Rússlandsher gerði stórfellda árás á Úkraínu.
Eldur kom upp og tvennt meiddist lítillega eftir að hann skall á þaki fjölbýlishúss í hafnarborginni Galati, nærri landamærunum að Úkraínu. Leiðtogar Evrópuríkja brugðust ókvæða við.
Rússar þvertaka fyrir að dróninn tilheyri þeim og þjóðaröryggisráðgjafinn Dmitry Medvedev sagði fyrir helgina að ríki Evrópubandalagsins ættu að hætta að þrasa um þetta mál.
Hann sagði jafnframt í færslu á samfélagsmiðlum að kyrrlátum svefni þeirra væri nú lokið. Dan forseti sagði skýrsluna verða afhenta samherjum Rúmeníu innan Atlantshafs- og Evrópubandalagsins.