Skemmdarverkið sem unnið var á tröppunum fyrir utan Grafarvogskirkju í nótt hefur verið tilkynnt til lögreglu.
Þetta staðfestir Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu. Málið er rannsakað sem hatursglæpur.
Íslenski fáninn var málaður yfir regnbogafánann á tröppunum í nótt.
Arna Ýrr Sigurðardóttir sóknarprestur segir að á næstu dögum ætli kirkjan að safna saman fólki til að mála upprunalega fánann aftur á tröppurnar.