Rakel María Hjaltadóttir förðunarfræðingur og hlaupakona birti skemmtilegt myndband á TikTok þar sem hún gerir stólpagrín að sjálfri sér.
Segist hún hafa fengið heyrnartól að gjöf og brugðið sér út að hlaupa til að prófa þau. Segir hún hljómgæðin hafa verið geggjuð og vel heyrst í heyrnartólunum. Síðan ákvað Rakel María að tékka á hvort heyrnartólin væru örugg og myndu haldast á sínum stað.
„Ég get ekki hætt að hlæja, þetta er alltof fyndið,“ segir Rakel María og biður manninn sem rakst á hana í Öskjuhlíð afsökunar.
@rakelmariah HJÁLP 😂🥲 Hvernig GET ég verið svona mikill lúði?? 😂😂 #islensktiktok #islenskt #fyrirþig #fyndið ♬ original sound – Rakelmaria