Ragnar Freyr Ingvarsson læknir gagnrýnir harðlega þau orð Runólfs Pálssonar forstjóra Landspítalans að læknisþjónusta sem sé veitt af félagasamtökum sé barn síns tíma. Tilefni ummæla Runólfs eru þær miklu deilur og erfiðu aðstæður sem hafa verið innan SÁÁ, með þeim afleiðingum að meðferðarstarfið er í hálfgerðum lamasessi. Ragnar Freyr segir að ekki megi gleyma öllu því góða sem SÁÁ og önnur félagasamtök, sem hafa sinnt heilbrigðisþjónustu, hafi gert fyrir samfélagið.
Ragnar Freyr hjólar í forstjóra Landspítalans - „Það er auðvitað lygileg fullyrðing“