Gröfumaður gróf í háspennustreng í morgun með þeim afleiðingum að rafmagn fór af stórum hluta Mosfellsdals. „Verktakinn sem gróf í strenginn, hann lét okkur vita sem við kunnum að meta,“ segir Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna.
Rafmagnsleysið er því algjörlega ótengt rafmagnsleysi sem varð í stórum hluta Mosfellsbæjar í gærkvöld.
Hún telur að viðgerð taki skamma stund. „Af því að við vitum nákvæmlega hvar bilunin er þá getum við örugglega unnið þetta hratt.“
Silja bendir á undirsíðu á vef Veitna þar sem gefin eru góð ráð sem vert er að hafa í huga áður en byrjað er að grafa í jörð.
„Það er alltof algengt að þetta gerist. Það er svo mikilvægt að fólk kynni sér þetta áður en það fer að grafa því að grafa í háspennustreng getur verið mjög hættulegt.“