Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum. Þar segir að rafmagnslaust sé við Bakka, Seljahverfi og nágrenni.
Bilunin varð klukkan 23:30 og er unnið að viðgerð.
„Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda,“ segir í tilkynningunni.
Uppfært:
Viðgerð var lokið um klukkan 00:50 og rafmagn komið aftur á hjá öllum íbúum.