Kjarnorkuverið í Zaporizhzhia, sem Rússar lögðu undir sig í innrásinni í Úkraínu 2022, er komið aftur inn á raforkunet Úkraínu, þremur dögum eftir að það datt út eftir árás Rússa.
Viðgerðarmenn komust að verinu eftir að tímabundnu vopnahléi var komið á á svæðinu, að því er Alþjóða kjarnorkumálastofnunin segir í tilkynningu.
Verið gekk á meðan á dísilknúnum rafstöðvum til að kæla kjarnakljúfana. Engrar aukinnar geislunar hefur orðið vart í nágrenni versins.
Zaporizhzhia liggur á víglínunni milli Úkraínuhers og innrásarliðs Rússa og hafa stjórnvöld beggja vegna sakað hvort annað um að hætta á kjarnorkuslys með árásum í kringum verið.