Sjálfstæðisflokkur og Framsókn hafa hafið formlegar viðræður um myndun meirihluta í Hafnarfirði. Flokkarnir voru í meirihlutasamstarfi síðustu tvö kjörtímabil.
Í tilkynningu frá oddvitum framboðslistanna, þeim Orra Björnssyni og Valdimar Víðissyni segir samstarf flokkanna hafi verið farsælt og vinna við meirihlutasáttmála hefjist nú þegar.
Skipting helstu embætta verður ákveðin í kjölfarið, en markmiðið er að ljúka myndun nýs meirihluta fyrir helgina og kynna niðurstöðurnar þá.