Ráðgjafar- og greiningarstöð hefur fengið tímabundið húsnæði fyrir starfsemina. Staðgengill forstjóra segir húsnæðið viðunandi tímabundið en ókostur sé að vera á tveimur stöðum.
Starfsemi Ráðgjafar- og greiningarstöðvar hefur verið verulega skert frá því í byrjun ágúst þegar mygla greindist í húsnæði hennar í Dalshrauni í Hafnarfirði. Starfsfólk hefur unnið heima síðan.
Hundruð barna með alvarlegar þroskaskerðingar eru á biðlista og meðalbiðtími er rúmlega tvö ár.
Hlutverk Ráðgjafar- og greiningarstöðvar er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar, sem geta leitt til fötlunar síðar á ævinni, fái greiningu, ráðgjöf og úrræði til að bæta lífsgæði þeirra. Hún sinnir börnum að 18 ára aldri alls staðar á landinu.
Húsnæði á tveimur stöðum ókostur
Stofnunin er komin með tímabundið húsnæði á tveimur stöðum, í Lágmúla og á Fiskislóð í Reykjavík.
„Og hafa sem sagt klíníska starfið, taka á móti fjölskyldum í Lágmúlanum en hafa flestar vinnustöðvar fyrir starfsfólkið á Fiskislóðinni,“ segir Solveig Sigurðardóttir, staðgengill forstjóra Ráðgjafar- og greiningarstöðvar.
Er þetta viðunandi húsnæði fyrir starfsemina?
„Þetta er viðunandi tímabundið en það eru kostir og gallar við allt. Kannski helsti gallinn er hvað Fiskislóðin er út úr, ekki miðsvæðis í borginni.“
Ókostur sé að vera á tveimur stöðum.
„Algjörlega, það er mikill ókostur. Eftir um fimm, sex vikur í heimavinnu þá er þetta ókostur. Og það eru kannski viss vonbrigði hjá starfsmannahópnum með það að þetta sé tímabundna lausnin – en við urðum að finna eitthvað og þetta var lendingin.“
Vonar að þau geti flutt aftur eftir áramót
Solveig segist ekki vita nákvæmlega hversu lengi starfsemin verði í tímabundna húsnæðinu en vonar að viðgerðirnar taki ekki lengri tíma en nokkra mánuði.
„Við erum að vonast til að þetta verði ekki mikið lengur en fram að áramótum.“
Starfsemin hefur verið í algjöru lágmarki frá því í ágúst.
„Því miður, en við sjáum fram á bjartari tíma, að við séum að komast í þetta tímabundna húsnæði innan kannski tveggja vikna,“ segir Solveig.
„Þetta hefur mjög mikil áhrif og fyrir þann tíma voru margir í heimavinnu af því að þeir þoldu ekki húsnæðið í Dalshrauni. Þá voru 10 til 15 manns sem komu ekki í hús. Þannig að þetta hefur verið uppsöfnuð þreyta og erfiðleikar hjá mörgum.“