Útivistarfélögin Ferðafélag Íslands og Útivist og Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli vara fólk við hættulegum aðstæðum á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls. Þau ráða fólki eindregið frá göngu yfir hálsinn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félögunum.
Gil og sprungur hafa opnast á leiðinni síðustu ár samhliða því að jökullinn hefur hopað. Einnig hafa myndast brattar brekkur og skriður á hluta leiðarinnar milli Baldvinsskála og Fimmvörðuhálsskála þar sem áður var snjór eða jökulís.
Einnig hafa komið í ljós snjóbrýr þar sem snjó vetrarins hefur tekið upp. Undir þeim renna jökulár. Í tilkynningu félaganna segir að mjög hættulegt geti verið að fara yfir jökulbrýrnar eða nálgast þær.
Fréttin var uppfærð eftir að félögin breyttu ráðleggingu sinni.