Pútín sagður líta út fyrir að vera hræddur og veikburða á sigurhátíðinni í Moskvu

Vladimir Putin hefur sætt miklu háði eftir framkomu sína á sigurdeginum í Moscow þar sem gagnrýnendur segja hann hafa litið út fyrir að vera þrekaðan, veikburða og hræddan.
Heilsufar rússneska leiðtogans hefur lengi verið tilefni vangaveltna og nú segja andstæðingar hans að útlit hans á hátíðinni hafi ýtt enn frekar undir þær sögusagnir.
Harðstjórinn er sagður dauðhræddur við valdarán eða morðtilræði af hálfu Úkraínu og var kallaður „mjög hræddur, aldraður einræðisherra“ af rússneska stjórnarandstæðingnum Mikhail Khodorkovsky eftir að hann kom fram á sigurdeginum í Moskvu.
Úkraínski álitsgjafinn Anton Gerashchenko birti einnig mynd af Pútín þar sem bólgnar kinnar hans vöktu athygli. Hann skrifaði háðslega að „viðskiptaþvinganirnar virtust loksins hafa náð til botox-fyllinga Pútíns“.
Athygli vakti að hergögn voru ekki sýnd í skrúðgöngunni í fyrsta sinn í nærri tvo áratugi. Sumir túlkuðu það sem tákn um minnkandi styrk stjórnvalda í Kreml.
Andstæðingur Pútíns, Leonid Nevzlin sagði hina smækkuðu hátíð sýna að völd Pútíns væru að veikjast.
„Framtíð stjórnkerfisins snýst nú um heilsu eins gamals manns,“ sagði Nevzlin og bætti við að ekki væri lengur rætt um kosningar eða pólitíska stefnu heldur útlit handa hans og heilsufar.
Gagnrýnendur bentu einnig á að öryggisgæsla í kringum Pútín hefði aldrei verið jafn umfangsmikil og nú. Nevzlin sagði forsetann annaðhvort vera mjög hræddan eða að honum væri markvisst haldið í stöðugum ótta.
Á sama tíma hafa borist fréttir af miklu mannfalli rússneska hersins í stríðinu í Úkraínu. Samkvæmt nýjum tölum hafa 7.480 rússneskir hermenn, fallið, særst eða verið handteknir, fyrstu vikuna í maí einum saman.