Smartland greindi fyrst frá tíðindunum.
Birgitta hefur leikið í fjölda sýninga á fjölum stóru leikhúsanna tveggja á síðustu tuttugu árum, hún fór meðal annars með hlutverk Ástu Sigurðardóttur í sýningunni Ástu. Hún hefur jafnframt leikið í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum, til að mynda Villibráð (2023) og Hildi (2025). Birgitta var áður gift tónlistarmanninum Örvari Smárasyni og á með honum tvær dætur.
Pétur starfaði um margra ára bil sem aðstoðarmaður Dags B. Eggertssonar borgarstjóra en var árið 2022 ráðinn þróunar- og viðskiptastjóri Veitna, dótturfyrirtækis Orkuveitu Reykjavíkur. Hann hefur síðan þá tekið við hlutverki forstöðumanns sjálfbærni og öryggis innviða hjá veitufyrirtækinu. Pétur heldur úti stjórnmálahlaðvarpinu Korter í kosningar með Magnúsi Sigurbjörnssyni.