Bandaríska leikkonan Hayden Panettiere lést eftir að hafa tekið oxycontin-töflu með íblönduðu fentanýli. Bandaríski fjölmiðillinn TMZ hefur þetta eftir heimildarmönnum í lögreglunni.
Panettiere lést 17. ágúst. Hún var 36 ára. Hún fannst meðvitundarlaus í hjartastoppi. Vinur hennar hringdi á neyðarlínuna en endurlífgunartilraunir báru ekki árangur.
Panettiere var í Greenville í Suður-Karólínu þegar hún lést. TMZ hefur eftir fjölda heimildarmanna innan lögreglunnar að hún hafi keypt efnin af fíkniefnasala í Los Angeles sem hún hafði verið í viðskiptum við í mörg ár.
Hann útvegaði henni fjöldann allan af lyfjum, þar á meðal oxycontin. Samkvæmt heimildum TMZ tók hún inn fjölmörg lyf sem hún hafði keypt af fíkniefnasalanum daginn áður en hún lést.
Yfirvöld telja að hún hafi tekið eina oxycontin-töflu með íblönduðu fentanýli morguninn sem hún lést og það hafi dregið hana til dauða.
Fíkniefnalögreglan í Los Angeles rannsakar tengsl Panettiere og fíkniefnasalans, að sögn TMZ, til þess að reyna að rekja eitruðu töfluna til hans. Heimildarmenn setja þó þann fyrirvara að enn er beðið eftir niðurstöðu eiturefnarannsóknar sem gerð var eftir að Panettiere lést.
Andláti hennar svipar til dauða rapparans Macs Miller sem lést á heimili sínu í september 2018 af völdum ofskömmtunar kókaíns, fentanýls og áfengis. Fíknefnasali sem seldi honum efni, sum blönduð fentanýli, var sakfelldur fyrir það.