Bandaríska leikkonan Hayden Panettiere lést eftir að hafa tekið oxycontin-pillu með íblönduðu fentanýli. Bandaríski fjölmiðillinn TMZ hefur þetta frá heimildarmönnum innan lögreglunnar.
Panettiere lést 17. ágúst. Hún var 36 ára.
Panettiere fannst meðvitundarlaus og í hjartastoppi. Vinur hennar hringdi á neyðarlínuna en endurlífgunartilraunir báru ekki árangur.
Panettiere var í Greenville í Suður-Karólínu þegar hún lést. TMZ hefur eftir fjölda heimildarmanna innan lögreglunnar að hún hafi keypt fíkniefnin af eiturlyfjasala í Los Angeles sem hún var búin að stunda viðskipti við í mörg ár.
Hann útvegaði henni fjöldann allan af lyfjum, þar á meðal oxycontin. Samkvæmt heimildum TMZ tók hún fjölmörg lyf sem hún hafði keypt af eiturlyfjasalanum daginn áður en hún lést.
Yfirvöld telja hana hafa tekið eina oxycontin-pillu með íblönduðu fentanýli morguninn sem hún lést. Hún hafi dregið hana til dauða.
Fíkniefnalögreglan (DEA) í Los Angeles rannsakar tengslin á milli Panettiere og eiturlyfjasalans, að sögn TMZ, til þess að reyna að rekja eitruðu pilluna til hans. Heimildarmenn setja þó fyrirvara á að enn á eftir að koma niðurstaða úr eiturefnarannsókn sem gerð var eftir andlát Panettiere.
Andláti Panettiere svipar til andláts rapparans Macs Miller. Hann lést á heimili sínu í september 2018 af völdum ofskömmtunar kókaíns, fentanýls og áfengis. Eiturlyfjasali sem seldi honum fíkniefni, sum þeirra íblönduð með fentanýli, var sakfelldur fyrir það.