Páll sakar Helga um smekkleysi eftir orðaskipti um Karl Th.

Sagnfræðingurinn og varaborgarfulltrúinn Stefán Pálsson hefur lagt til að RÚV geri útvarpsþættina Orð skulu standa, sem Karl Th. Birgisson hafði umsjón með, aðgengilega á netinu til minningar um Karl en greint var frá andláti hans í fjölmiðlum í gær.
Stefán setti hugmyndina fram á Facebook og sagði þættina geta átt vel við nú þegar margir leiti sér að hlaðvörpum til hlustunar.
Brynjólfur Þór Guðmundsson, blaðamaður RÚV, sagði í umræðum við færsluna að honum skildist að málið væri til skoðunar og gæti orðið að veruleika innan skamms. Stór hluti efnis þáttanna væri tímalaus, þótt óljóst væri hvernig réttindamálum vegna þeirra væri háttað.
Stefán sagði jafnframt að hann teldi vanta skýrari stefnu hjá RÚV um miðlun eldra efnis. Velti hann því meðal annars upp hvort þróa mætti vef RÚV í átt að Tímaritavefnum og gera þar gamalt efni aðgengilegt í stórum stíl, eftir því sem réttindi leyfðu.
Brynjólfur sagði „stóra drauminn“ vera að koma sem mestu efni á vefinn. Um væri að ræða stórt og kostnaðarsamt verkefni en mikið af eldra efni hefði á síðustu árum verið fært yfir á stafrænt form.
Umræðan varð síðar hvassari þegar Páll Baldvinsson, fyrrverandi ritstjóri og blaðamaður sem meðal annars hefur starfað fyrir RÚV, vakti athygli á höfundarréttarmálum. Hann velti því upp hvort RÚV hefði á sínum tíma keypt allan rétt að þáttunum eða hvort samningar hefðu aðeins gert ráð fyrir tiltekinni notkun í takmarkaðan tíma.
Helgi Seljan, fréttamaður RÚV, svaraði Páli með kaldhæðnum hætti og sagði tilefnið „aldeilis flott til að tuða yfir endurflutningi á efni og aðgengileika þess, sem gerist auðvitað gratís“.
Páll brást við og sagði orðið „flott“ vart eiga við. „Það hefði verið ‚flott‘ að sýna þetta meðan maðurinn var á lífi,“ skrifaði hann og lagði áherslu á að endurflutningur efnis væri háður réttindum.
Helgi skýrði þá að um kaldhæðni hefði verið að ræða og sagðist fremur hafa verið að „hnýta í þennan status“. Hann benti jafnframt á að ekki væri langt síðan þættir Karls um Frændur okkar í Persíu hefðu verið endurfluttir og gerðir aðgengilegir.
„Það verður auk þess og er þegar búið að leggja grunn að því að birta meira af efninu hans,“ skrifaði Helgi.
Páll svaraði því að lokum með beittum orðum og sagði: „Svona af því að maðurinn var rétt orðinn kaldur. Smekkvís strákur Helgi.“