Þetta staðfestir Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, í samtali við Vísi. Spurð að því um hvað frumvarp Eyjólfs er vísar hún á ráðherra.
Eyjólfur er ráðherra flugmála og því væri það í hans verkahring að leggja fram frumvarp um lög á verkfall flugvirkja, sem hófst á miðnætti.
Samkvæmt heimildum Vísis mun forsætisnefnd Alþingis koma saman til fundar klukkan 12:30 en hún heldur utan um skipulag þinghalds. Ætla má að þingfundur hefjist að loknum fundi forsætisnefndar en það hefur ekki enn fengist staðfest.
Hvorki hefur náðst í Eyjólf né aðstoðarmenn hans tvo við vinnslu fréttarinnar. Þá hefur ekki heldur náðst í aðstoðarmenn formanna ríkisstjórnarflokkanna.