Margir ráku eflaust upp stór augu þegar fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi bárust í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardagskvöld. Þar var staðan nefnilega nákvæmlega jöfn: 9.900 atkvæði höfðu sagt já og 9.900 nei.Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir, formaður yfirkjörstjórnar Suðvesturkjördæmis, segir í samtali við Morgunblaðið í dag að skýringin liggi í talningaraðferðinni.Atkvæðin voru talin í hundrað atkvæða bunkum og þegar fyrstu tölur voru teknar saman voru aðeins fullir bunkar teknir með.
Ótrúlegar fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi útskýrðar – „Maður veit aldrei með þessar tölur“