Stjórnvöld hyggjast selja Tollhúsið við Tryggvagötu í Reykjavík. Húsið hýsti lengst af starfsemi tolla- og skattayfirvalda og þar voru fyrir skemmstu skrifstofur Grindavíkurbæjar eftir að rýma þurfti bæinn vegna náttúruhamfara.
Fasteignasalan Torg birtir heilsíðuauglýsingu í Morgunblaðinu í dag þar sem húsið er auglýst til sölu. Þar er tekið fram að það sé að stærstum hluta innréttað sem skrifstofuhúsnæði en að hluti jarðhæðar sé í útleigu og hýsi starfsemi Kolaportsins.
Ekki eru gefnar upp verðhugmyndir í auglýsingunni heldur er óskað eftir tilboðum í húsið.