Þeir Kristján Vigfússon og Jökull Sólberg Auðunsson eru stjúpfeðgar sem eru afar nánir og eiga margt sameiginlegt. Til dæmis deila þeir miklum áhuga á pólitík. Þá greinir engu að síður á um eitt fyrirferðarmikið umræðuefni, áframhaldandi aðildarviðræður Íslands að ESB.
Kristján Vigfús tók þátt í að stofna Evrópuhreyfinguna og ætlar að segja „já“ í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn. Jökull er hins vegar stjórnarmaður í Til vinstri við ESB og ætlar að segja „nei“.
Þessi skoðanaágreiningur hefur haft í för með sér miklar rökræður sem hafa orðið ansi heitar.
„Við fórum dálítið bratt í þetta í vor, það verður að viðurkennast. Það voru stundum dálítið miklar rimmur á milli okkar og stundum, tvisvar eða þrisvar sinnum, vorum við beðnir um að hægja á okkur í fjölskylduboðum,“ segir Kristján.
„Ég grínast með það að við tjáum ást okkar með því að rífast. Það er ást að hlusta á þig og rífast við þig,“ segir Jökull.
Þeir ákváðu svo að slaka á rökræðunum, ekki síst fyrir aðra í fjölskyldunni. „Við föttuðum að við þyrftum að gefa hinum frí,“ segir Jökull. „Það var þá sem við föttuðum að það væri kannski ekki skemmtilegt fyrir alla að hlusta á karp.“
„Þá róuðum við okkur mjög mikið og tókum smá pásu. Svo byrjuðum við aftur og höfum gert það á miklu yfirvegaðri hátt,“ bætir Kristján við.
Viðtalið við feðgana úr Kastljósi má sjá í heild í spilaranum hér að neðan.