Pólskar orrustuþotur höfðu afskipti af tveimur rússneskum herþotum innan lofthelginnar yfir Eystrasalti.
Aðstoðarvarnarmálaráðherrann Cezary Tomczyk greindi frá þessu í færslu á X án þess að tilgreina hvenær atvikið varð né hve margar pólskar þotur voru sendar á loft. Hann sagði Atlantshafsbandalagið bregðast umsvifalaust við öllum öryggisbrotum Rússa í lofthelgi Póllands og annarra aðildarríkja.
Pólskar herþotur höfðu afskipti af rússneskri njósnaflugvél innan lofthelginnar fyrir rúmum hálfum mánuði. Þá sagði varnarmálaráðherrann Wladyslaw Kosiniak-Kamysz Rússa viðhafa ögrunartilburði til að reyna á varnarviðbúnað Póllands.