Um nokkurra ára skeið þjónaði ég sem prestur í Noregi. Það var lærdómsríkur tími. Eitt af því sem þar flaut upp á yfirborð í daglegri umræðu, var reynsla Norðmanna af síðari heimsstyrjöldinni, þegar landið var hernumið af þýskum nasistum. Þá gerðist það sem ætíð gerist þegar átök í menningarheimum eiga sér stað, að menn skipast í tvær fylkingar. Langflestir höfnuðu hugmyndafræði nasista, en minnihluti lagðist á sveif með þeim, fundu tækifæri í undirlægjuhætti og gerðust ræðarar á langskipi einnar hættulegustu hugmyndafræði sem um getur.
Örn Bárður Jónsson skrifar: Taktur þér stöðu! – Hvorum megin viltu standa í 3. heimsstyrjöldinni?