Orðin háð því að vera „enginn“ - Vísir

Orðin háð því að vera „enginn“ - Vísir

Orðin háð því að vera „enginn“ - Vísir

Í dag er Sóley 31 árs og starfar sjálfstætt sem UI/UX-hönnuður, sem gerir henni kleift að vinna nánast hvar sem hún er stödd. Nú ferðast hún um Evrópu í kamper með brasilískum kærasta sínum og sinnir vinnunni á leiðinni, hvort sem vinnuaðstaðan er kaffihús, bókasafn eða bíllinn sjálfur.

Ekki bara eitt langt sumarfrí

Sóley er fædd og uppalin í Hafnarfirði. Löngunin til að komast út fyrir landsteinana kom snemma fram og hún segist sem barn hafa heillast af sögum um fólk sem flakkaði á milli staða. Síðar varð Frakkland fyrsta áfangastaðahugmyndin.

Kvikmyndin Ratatouille átti þar meira að segja sinn þátt; Sóley fékk áhuga á frönsku og ákvað að fara þangað í skiptinám.

Hún fór snemma að safna. Sextán ára sótti hún um vinnu og tók sérstaklega fram í umsókninni að hún væri að leggja fyrir vegna fyrirhugaðs skiptináms. Á þeim tíma kostaði skiptinám með AFS rúma milljón króna og Sóley hafði sett sér það einfalda, og jafnframt metnaðarfulla markmið að safna milljón.

„Ég fæddist ekki með silfurskeið í munninum. Ég var bara að vinna og safna. Ég setti meira að segja í atvinnuumsóknina mína að ég væri að safna fyrir skiptinámi til Frakklands. Ég var sextán ára og var bara ákveðin í að láta þetta gerast.“

Þegar hún var komin nálægt því að eiga milljón komst hún hins vegar að því að Rotary bauð upp á skiptinám fyrir mun lægri upphæð. Þá fór Frakkland skyndilega að virðast fullnálægt. Hún vildi lengra. Eftir nokkuð skrautlega ákvarðanatöku varð Brasilía fyrir valinu, þrátt fyrir að Sóley vissi lítið sem ekkert um landið og vissi ekki einu sinni að þar væri töluð portúgalska.

Hún fór 17 ára til Birigui, minni borgar í São Paulo-fylki, og kunni að eigin sögn aðeins örfá orð í tungumálinu þegar hún lenti.

„Ég er svolítið þannig að ég vil ekki alltaf vita allt áður en ég fer. Ég horfi ekki einu sinni á trailer áður en ég horfi á bíómynd. Ég fór til Brasilíu og kunni kannski fimm orð en það var bara no way back eftir þetta.“

Brasilía hefur oftar en einu sinni orðið vendipunktur í lífi Sóleyjar.Aðsend

Í skiptináminu dvaldi hún hjá fleiri en einni fjölskyldu. Við aðra þeirra myndaðist sterkt samband sem hefur haldist fram á þennan dag og fjölskyldan tekur enn á móti henni þegar hún kemur til Brasilíu. Eftir árið sneri Sóley aftur heim, kláraði menntaskóla og dúxaði. Þá tók næsta ferð við. Hún fór meðal annars í Asíu- og heimsreisu og síðar til Bandaríkjanna í eitt ár á vegum Rotary.

Mynstrið varð að mörgu leyti einfalt: koma heim, vinna, safna og fara aftur út. Stundum var hún í námi, stundum á ferðinni og stundum nýtti hún skólastyrki eða önnur tækifæri til að láta hlutina ganga upp.

Hún leggur þó áherslu á að ferðalögin séu ekki eitt langt sumarfrí.

„Ég held að ég hafi bara einu sinni farið í svona ferð þar sem ég var bara á bakpokaferðalagi, að sjá allt og njóta og vera í fríi allan tímann. Annars hefur þetta alltaf verið lífsstíll. Ég er ekki adrenalínisti og ég er ekki að fara að sýna mig hoppa út úr flugvél. Ég reyni bara að lifa mjög venjulegu lífi, halda rútínu og vinna.“

Vinnan opnaði dyrnar

Sóley fór síðar í nám í Kaupmannahöfn þar sem hún lærði blöndu af markaðsfræði, hönnun, frumkvöðlafræði og nýsköpun. Meðfram náminu vann hún hjá fyrirtæki tengdu Novo Nordisk. Þegar náminu lauk gat fyrirtækið ekki ráðið hana áfram með sama fyrirkomulagi en bauð henni að vinna fyrir sig sem verktaka ef hún færi út í sjálfstæðan rekstur.

Sóley greip tækifærið.

Í dag hefur hún unnið sjálfstætt í um fjögur og hálft ár og starfar sem UI/UX-hönnuður. Hún segir reksturinn hafa gengið vel og vinnuna hafa gert henni kleift að halda áfram þeim lífsstíl sem hún vill. Hún tekur einnig að sér íslensk verkefni og vill gera meira af því.

„Ég fer bara á mismunandi skrifstofur, bókasöfn eða kaffihús til að vinna, stundum vinn ég bara í bílnum. Ég er mjög heppin að geta unnið sjálfstætt. Það eru auðvitað gallar við að vera mikið ein að vinna, en mér finnst samt miklu betra að ráða mér sjálf. Ég veit að ég vinn best þannig og lifi best þannig.“

Covid-tímabilið hafði töluverð áhrif á þessa þróun. Fyrir heimsfaraldurinn segist Sóley nánast ekki hafa getað unnið heima. Hún fór frekar snemma í skólann og sat þar fram á kvöld til að ljúka verkefnum. Þegar fjarvinna varð skyndilega eðlilegur hluti af tilverunni breyttist þetta og síðan hefur staðsetningin haft sífellt minna að segja.

Hitti kærastann og sá hann svo ekki aftur í sjö ár

Brasilía hefur oftar en einu sinni orðið vendipunktur í lífi Sóleyjar. Um tvítugt var hún í heimsókn hjá vinkonu í strandborg í landinu þegar hún kynntist manninum sem síðar varð kærasti hennar, Mar Azul Salviano de Andrade.

„Það er gaman að nefna það að nafnið hans er mjög sérstakt hér í Brasilíu, en það nafnið þýðir sem sagt „Blár sjór“,“ segir Sóley.

Þau kynntust fyrir tilviljun á ströndinni. Sóley hafði áður hitt foreldra hans þar en einn morguninn, þegar vinkona hennar ákvað að sofa út, fór hún ein niður á strönd til að njóta síðasta dagsins áður en hún héldi áfram ferð sinni. Þar hitti hún Mar Azul og þau tóku tal saman.

Dagurinn þróaðist fljótt í heilan ævintýradag. Þau fóru meðal annars á bananabát, á kajak út að eyjum og á stand-up bretti, kíktu í bakarí, fóru út að borða og elduðu saman í tjaldinu hjá fjölskyldu hans. Þau voru saman frá morgni og fram undir ellefu um kvöldið.

„Við vorum bara allan daginn saman. Þetta var bara einn dagur en ég fann strax mjög sterka tengingu við hann.“

Daginn eftir hélt Sóley áfram ferð sinni. Þau Mar Azul hittust ekki aftur næstu sjö árin.

Sambandið rofnaði þó ekki alveg. Þau fylgdust hvort með öðru á Instagram og spjölluðu öðru hvoru saman. Sóley tekur fram að þau hafi ekki verið í fjarsambandi heldur einfaldlega haldið vináttunni við. Hún skrifaði jafnframt um hann í dagbókina sína og lýsti þar sterkri tengingu sem hún hafði fundið þegar þau kynntust.

Sjö árum síðar var Sóley stödd í Danmörku, nýútskrifuð og óviss um hvað hún vildi gera næst. Hún hafði sett eigur sínar í geymslu og var farin aftur á flakk. Þegar hún fór að velta fyrir sér nýrri ferð til Brasilíu hafði hún samband við Mar Azul. Hann spurði hvort hann mætti ferðast með henni.

„Ég ætlaði bara að stoppa aðeins í Brasilíu og við ætluðum að ferðast eitthvað saman. Svo endaði þetta bara þannig að ég var þar í heilt ár. Það var eiginlega no way back eftir það.“

Sóley og Mar hittust fyrst þegar Sóley var um tvítugt, sáust ekki í sjö ár en fundu síðan aftur hvort annað og eru nú komin á fjórða ár saman.Aðsend

Árið 2026 eru þau komin á fjórða ár sambandsins. Mar Azul ferðast gjarnan með Sóleyju og hann hefur þegar komið einu sinni til Íslands. Hann hyggst koma aftur með henni til Íslands í haust.

Prófaði að vera „fullorðin á Íslandi“

Í desember ákvað Sóley að gera dálitla tilraun. Hún kom heim frá Brasilíu og ætlaði að prófa að vera „fullorðin á Íslandi“ í hálft ár.

Hún keypti sér íbúð.

Niðurstaðan kom henni sjálfri dálítið á óvart: Henni fannst mjög gott að vera hér.

„Ég hélt ekkert endilega að ég myndi fíla að búa á Íslandi. Svo prófaði ég það og var bara: Úps, nei nei, ég vil líka vera hér. Ég elska að vera á Íslandi en ég er samt ekki tilbúin að stoppa. Óskin okkar er eiginlega að geta gert bæði, kannski hálft ár hér og hálft ár þar eða eitthvað slíkt.“

Íbúðin hefur því ekki orðið tákn um að ferðalögunum sé lokið heldur frekar leið til að tryggja tenginguna heim. Sóley leigir hana út þegar hún er erlendis og lýsir henni sem ákveðnum „aðgangsmiða“ að Íslandi.

Eftir því sem árin erlendis hafa orðið fleiri hefur hún jafnframt fundið sterkari tengingu við íslenskuna og íslenska menningu.

„Í hvert skipti sem ég kem heim finn ég bara hvað ég dýrka Íslendinga. Það er svo næs að geta talað sitt eigið tungumál. Ég finn rosalega sterka tengingu við menninguna mína og íslenskar konur og mig langar að taka þátt í því samfélagi.“

Það er líka ein ástæða þess að hún byrjaði að birta TikTok-myndbönd á íslensku. Hún segir sig í raun fá meiri athygli í Brasilíu en langaði sérstaklega að nota samfélagsmiðla til að tengjast Íslendingum. Viðbrögðin komu henni á óvart. 

@soley.vera Smá um mig ☀️ #islensktiktok #fyrirþig #islenska ♬ original sound - Sóley Vera ☀️

Eftir aðeins örfá myndbönd hafði fylgjendahópurinn farið að stækka og hún fékk skilaboð frá fólki sem spurði meðal annars um ráð varðandi ferðalög.

Sóley vinnur sjálfstætt sem UI/UX-hönnuður og ferðast nú með kærastanum um Evrópu í kamper.Aðsend

Fær að vera hún sjálf

Þegar Sóley reynir að útskýra hvað heldur henni á ferðinni nefnir hún fyrst fólk. Hún lýsir sjálfri sér sem introvert en segist engu að síður hafa mjög gaman af því að spjalla við ókunnuga. Hún laðast sérstaklega að fólki sem hefur óvenjulega sögu eða annan vinkil á lífið.

Svo kemur hin ástæðan.

„Ég held að ég sé eitthvað smá háð því að vera „nobody“. Mér finnst óeðlilega gaman að mæta eitthvert þar sem enginn þekkir mig. Þá er enginn með einhverjar fyrir fram ákveðnar hugmyndir um hver ég er eða í hvaða ramma ég á að passa. Ég fæ bara að vera ég sjálf.“

Tilfinningin er ekki ný. Sóley rifjar upp að strax í grunnskóla hafi hana langað að skipta um skóla einfaldlega til að prófa nýjan stað þar sem ekki allir þekktu hana. Hún veltir því stundum fyrir sér hvort þessi þörf sé einhvers konar fíkn í nýtt upphaf, en segir hana fyrst og fremst hafa reynst sér vel.

Það sama á að hennar sögn við um ferðalögin almennt. Hún er ekki að safna löndum eða elta stórkostlegar upplifanir. Það sem hún sækist eftir er mun einfaldara: Frelsi.

Hún veit ekki nákvæmlega hvernig næstu ár líta út. Hún vill halda áfram að ferðast, vill eiga sterka tengingu við Ísland og segist jafnframt langa mikið í börn og vonast til að geta síðar sameinað fjölskyldulíf og ferðalög.

„Ég veit stundum ekkert hvar ég sef um kvöldið. Kannski er það bara eitthvert bílastæði og kannski er ég næsta dag í geðveikt kósý rjóðri. Það er tilbreytingin og frelsið sem ég fíla. Ég ræð svo miklu sjálf.“

#enginn #háð #orðin #vera #því


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262925172d/ordin-had-thvi-ad-vera-enginn-

📰 Aðrar fréttir

Life-threatening Hurricane Isaias makes landfall in Florida
📅 10.10.2026 👁️ 1
Life-threatening Hurricane Isaias makes landfall in Florida
The storm took direct aim at Florida and is expected to impact Alabama, Georgia, and Louisiana.
Öflugur jarðskjálfti af stærðinni 7,7
📅 10.10.2026 👁️ 1
Öflugur jarðskjálfti af stærðinni 7,7
Jarðskjálfti af stærðinni 7,7 varð í Panama í gær, um klukkan 18:00 að íslenskum tíma. Skjálftinn átti upptök sín um tíu kílómetra frá litlum bæ, Pita...
Trump og Pútín gera samning um dísilolíu
📅 10.10.2026 👁️ 2
Trump og Pútín gera samning um dísilolíu
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að hann hafi komist að samkomulagi við Vladimír Pútín Rússlandsforseta um afhendingu á 300.000 tonnum af dísilolí...
Vance ætlar ekki að horfa á af­tökuna í beinni - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 2
Vance ætlar ekki að horfa á af­tökuna í beinni - Vísir
Hasan, sem myrti þrettán manns í skotárás á Fort Hood-herstöðinni árið 2009, á að verða tekinn af lífi af aftökusveit í desember. Vance ræddi málið vi...
CJP, Gyanesh Kumar: Tens of thousands of forces deployed as Delhi braces for cockroach protest
📅 09.10.2026 👁️ 2
CJP, Gyanesh Kumar: Tens of thousands of forces deployed as Delhi braces for cockroach protest
Several trains to Delhi have been cancelled and dozens of metro stations are shut to stop protesters from gathering.
UK weather: a weekend of showers and sunshine ahead of warmer temperatures next week
📅 09.10.2026 👁️ 2
UK weather: a weekend of showers and sunshine ahead of warmer temperatures next week
With sunshine and showers forecast for the weekend, next week could see a return to some warmer temperatures but there will be gales for some.
Vance ekki spenntur fyrir aftökunni í beinni - „Þá ætla ég ekki að horfa“
📅 09.10.2026 👁️ 3
Vance ekki spenntur fyrir aftökunni í beinni - „Þá ætla ég ekki að horfa“
J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna er ekki áhugasamur um fyrirhugaða aftöku á Nidal Malik Hasan sem myrti 13 manns í herstöðinni Fort Hood í Texas á...
Þekkir þú RÚV stefin?
📅 09.10.2026 👁️ 3
Þekkir þú RÚV stefin?
Upphafsstef þáttanna sem sendir hafa verið út á rásum RÚV í gegnum tíðina eru sem greypt inn í minni þjóðarinnar.Trompetleikarinn Tumi Torfason hefur ...
Screams, haunting scenes and deadly hide-and-seek, as Celebrity Traitors heats up
📅 09.10.2026 👁️ 3
Screams, haunting scenes and deadly hide-and-seek, as Celebrity Traitors heats up
Episode four saw another contestant killed off, a ghoulish mission near a graveyard and a spooky twist.
Fréttir Vikunnar: Fimleikaæfingar Dorritar og 40 ára afmæli Stöðvar 2
📅 09.10.2026 👁️ 3
Fréttir Vikunnar: Fimleikaæfingar Dorritar og 40 ára afmæli Stöðvar 2
Bergild Festival fór yfir fréttir vikunnar í Vikunni með Gísla Marteini í kvöld. Ýmislegt bar á góma, til að mynda heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðh...
Trump's shock Russia deal highlights mounting pressure to curb fuel prices
📅 09.10.2026 👁️ 2
Trump's shock Russia deal highlights mounting pressure to curb fuel prices
The US president hopes to ease his party's pain before next month's midterm elections, writes the BBC's North America correspondent.
Kolbeinn Stefánsson hjólar í fjölmiðla og háskólasamfélagið: „Við erum tilbúin að trúa öllu slæmu um karla“
📅 09.10.2026 👁️ 3
Kolbeinn Stefánsson hjólar í fjölmiðla og háskólasamfélagið: „Við erum tilbúin að trúa öllu slæmu um karla“
Kolbeinn Stefánsson, dósent við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, gagnrýnir harðlega hvernig íslenskir fjölmiðlar fjölluðu um umdeilda rannsókn á ...
Reynir Valgeirsson skrifar: Skálanesbót – fuglarnir voru þar á undan kvíunum
📅 09.10.2026 👁️ 3
Reynir Valgeirsson skrifar: Skálanesbót – fuglarnir voru þar á undan kvíunum
Forspjall: Skálanes, landið, fólkið og fuglarnir
Trump rýfur einangrun Rússlands
📅 09.10.2026 👁️ 3
Trump rýfur einangrun Rússlands
Trump rýfur einangrun Rússlands Banda­ríkja­for­seti af­nem­ur við­skipta­bann Vest­ur­landa á olíu frá Rússlandi, sem átti að þvinga Vla­dimír Pútín ...
Faðir nauðgaði 14 ára stúlku á meðan móðirin tók það upp á farsímann sinn
📅 09.10.2026 👁️ 3
Faðir nauðgaði 14 ára stúlku á meðan móðirin tók það upp á farsímann sinn
Foreldrar fjórtán ára stúlku í Indlandi hafa verið handteknir eftir hrottalegt kynferðisbrot gagnvart henni. Faðirinn nauðgaði stúlkunni á meðan móðir...
JD Vance ætlar ekki að horfa á aftöku Hasans verði henni streymt
📅 09.10.2026 👁️ 3
JD Vance ætlar ekki að horfa á aftöku Hasans verði henni streymt
JD Vance varaforseti Bandaríkjanna segist ekki ætla að horfa á aftöku Nidals Hasans, fyrrverandi majórs í Bandaríkjaher, verði hún sýnd í beinni útsen...
Skrúð­gangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Skrúð­gangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu - Vísir
Chris Bryant, Norður-Írlandsmálaráðherra í bresku ríkisstjórninni, greindi frá ákvörðuninni í kvöld. Hún kemur í kjölfar nærri tveggja vikna átakastöð...
Gengur ekki að fjöldaframleiða framandi ágenga tegund
📅 09.10.2026 👁️ 3
Gengur ekki að fjöldaframleiða framandi ágenga tegund
Minkar og menn eru til umræðu á ráðstefnu sem er haldin í Norræna húsinu og er á vegum Samtaka um dýravelferð. Samtökin vilja Ísland án loðdýraræktar ...
Three men found guilty of murdering two Australian surfer brothers and US friend
📅 09.10.2026 👁️ 3
Three men found guilty of murdering two Australian surfer brothers and US friend
The bodies of Jake and Callum Robinson and their friend Carter Rhoad were found at the bottom of a well.
Reynir Valgeirsson skrifar: Selstaðavík – landið, hafsbotninn, byggðin og versta hamfarasviðsmyndin
📅 09.10.2026 👁️ 3
Reynir Valgeirsson skrifar: Selstaðavík – landið, hafsbotninn, byggðin og versta hamfarasviðsmyndin
Forspjall: Selstaðavík, landið, hafsbotninn og byggðin:Áður en sjálf hamfarasviðsmyndin er rakin þarf að sjá staðinn fyrir sér sem eina heild. Selstað...
Kvartaði yfir Sjúkratryggingum og heilbrigðisráðuneytinu vegna andláts dóttur sinnar á erlendu sjúkrahúsi - Alma beðin um almennar upplýsingar vegna málsins
📅 09.10.2026 👁️ 3
Kvartaði yfir Sjúkratryggingum og heilbrigðisráðuneytinu vegna andláts dóttur sinnar á erlendu sjúkrahúsi - Alma beðin um almennar upplýsingar vegna málsins
Umboðsmaður alþingis telur ekki tilefni til að halda áfram meðferð kvörtunar sem maður nokkur lagði fram vegna andláts dóttur hans á sjúkrahúsi í ónef...
Trump samdi við Pútín um dísel - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Trump samdi við Pútín um dísel - Vísir
Bandaríkjastjórn hefur samhliða þessu slakað tímabundið á höftum á rússneskum orkufyrirtækjum svo olían komist á markað. Trump greindi frá samkomulagi...
Sóttvarnarráðstöfunum aflétt í Rússlandi
📅 09.10.2026 👁️ 3
Sóttvarnarráðstöfunum aflétt í Rússlandi
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin kallar eftir því að rússnesk stjórnvöld deili gögnum um andlát starfsmanns á rannsóknastofu. Grunur vaknaði um að hún hefð...
Aukin heilsuefling eldra fólks gæti sparað 20 milljarða á ári
📅 09.10.2026 👁️ 3
Aukin heilsuefling eldra fólks gæti sparað 20 milljarða á ári
Hægt væri að spara ríkissjóði 20 milljarða á ári með því að seinka vistun þúsund manns á hjúkrunarheimili um eitt ár.Þetta segir Janus Guðlaugsson íþr...
„Við erum næstum að kæfa fram­halds­skóla­stigið“ - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
„Við erum næstum að kæfa fram­halds­skóla­stigið“ - Vísir
Í framsögu Magnúsar Þórs Jónssonar, formanns Kennarasambands Íslands, á fundinum kom fram að skólakerfið verði ekki byggt með skyndilausnum frá einu k...
Fjölbragðaglímumaður handtekinn eftir ólöglegt tak á 75 ára dómara sem dó í hringnum
📅 09.10.2026 👁️ 3
Fjölbragðaglímumaður handtekinn eftir ólöglegt tak á 75 ára dómara sem dó í hringnum
Fjölbragðaglímukappi í Mexíkó hefur verið handtekinn eftir að hafa tekið 75 ára gamlan dómara ólöglegu glímutaki. Dómarinn lést í kjölfarið.Miðillinn ...
Ölgerðin sögð hafa rutt samkeppni úr vegi með kröfu um einkasölu
📅 09.10.2026 👁️ 3
Ölgerðin sögð hafa rutt samkeppni úr vegi með kröfu um einkasölu
Samkeppniseftirlitið réðst í húsleit hjá Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar, í morgun vegna gruns um að Ölgerðin hefði gerst sek um misnotkun á markaðsrá...
Drumcree: Secretary of state Sir Chris Bryant to ban the Drumcree parade
📅 09.10.2026 👁️ 3
Drumcree: Secretary of state Sir Chris Bryant to ban the Drumcree parade
The parade has led to a stand-off between Orangemen and nationalist residents of the Garvaghy Road in Portadown lasting almost two weeks.
Vance biðlar til ungra reiðra manna - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Vance biðlar til ungra reiðra manna - Vísir
Miklu púðri hefur að undanförnu verið varið í að ná til ungra bandarískra manna og hefur JD Vance varaforseti verið fenginn sérstaklega í það verkefni...
Fordæma það að Pillay hafi fengið friðarverðlaun Nóbels
📅 09.10.2026 👁️ 3
Fordæma það að Pillay hafi fengið friðarverðlaun Nóbels
Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels sakar Navi Pillay, friðarverðlaunahafa Nóbels í ár, um gyðingafordóma. Pillay hefur kallað stríðsrekstur Í...
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky criticises 'gift to Putin'
📅 09.10.2026 👁️ 3
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky criticises 'gift to Putin'
Ukraine's president said allowing Russia to sell petroleum products would prolong a war that must be ended.
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky calls it a 'gift to Putin'
📅 09.10.2026 👁️ 2
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky calls it a 'gift to Putin'
Ukraine's president sharply criticised the move, calling it an "investment in war that must be ended, not prolonged".
Arion banki krefst tuga milljóna frá huldufyrirtæki sem stýrt er af manni sem finnst ekki
📅 09.10.2026 👁️ 4
Arion banki krefst tuga milljóna frá huldufyrirtæki sem stýrt er af manni sem finnst ekki
Arion banki hefur stefnt fyrirtæki, sem lítið fer fyrir og ekki virðast finnast merki um á skráðu heimilisfangi þess, til greiðslu um 83 milljóna krón...
Commentator Katie Zacharia picked as new White House press secretary
📅 09.10.2026 👁️ 4
Commentator Katie Zacharia picked as new White House press secretary
The conservative commentator currently works as a communications adviser at Trump Media & Technology Group.
Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir - Vísir
Greint er frá því í dagbók lögreglunnar að þetta hafi gerst í umdæmi lögreglustöðvar tvö sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi.  ...
Man arrested for allegedly setting fire to a dog in south Tenerife
📅 09.10.2026 👁️ 4
Man arrested for allegedly setting fire to a dog in south Tenerife
A man has been arrested in Adeje, south Tenerife, on suspicion of burning a dog alive, in a disturbing case that has also exposed wider concerns about...
JD Vance casts doubt on firing squad execution and says he won't watch it
📅 09.10.2026 👁️ 4
JD Vance casts doubt on firing squad execution and says he won't watch it
The planned execution of Nidal Hasan by firing squad would be the first military execution in more than 60 years.
Sigurveig I. Jónsdóttir er látin
📅 09.10.2026 👁️ 4
Sigurveig I. Jónsdóttir er látin
Sigurveig I. Jónsdóttir, fyrrverandi fréttastjóri Fréttastofu Stöðvar 2 og upplýsingafulltrúi Íslandsbanka, er látin 83 ára að aldri.Þetta kemur fram ...
Seldu ó­vart hjól við­skipta­vinar - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Seldu ó­vart hjól við­skipta­vinar - Vísir
Nytjamarkaðurinn lýsti eftir kaupandanum á samfélagsmiðlum í dag. Um rautt reiðhjól hafi verið að ræða sem selt hafi verið fyrir slysni enda nóg af öð...
Sigur­veig I. Jóns­dóttir er látin - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Sigur­veig I. Jóns­dóttir er látin - Vísir
Sigurveig I. Jónsdóttir, fyrrum fréttastjóri Fréttastofu Stöðvar 2 og upplýsingafulltrúi Íslandsbanka lést í dag, 9. október. Sigurveig fæddist í Reyk...
Þing­menn laumuðust í laugina eftir lokun - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Þing­menn laumuðust í laugina eftir lokun - Vísir
Þingmenn Norðausturkjördæmis fóru í sund í Selárlaug í Vopnafirði eftir lokun í kjördæmaviku. Sveitarstjórnarfulltrúi er sagður hafa gefið leyfi fyrir...
„Skemmtilegt hvernig okkar bókmenntaflóra hefur orðið ríkari með fólki sem hefur hingað flutt“
📅 09.10.2026 👁️ 4
„Skemmtilegt hvernig okkar bókmenntaflóra hefur orðið ríkari með fólki sem hefur hingað flutt“
„Þau eru auðvitað stórkostleg og ég byrja á því að óska henni til hamingju,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, inntur ...
Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing - Vísir
„Ég get staðfest að ég heyrði í nokkrum félögum úr verkalýðshreyfingunni um þetta og sömuleiðis að ég er ekki að fara fram,“ segir Katrín í skriflegu ...
Fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í bílakjallaranum við Höfðatorg
📅 09.10.2026 👁️ 4
Fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í bílakjallaranum við Höfðatorg
Kareem M. M. Abufarah hefur hlotið fimm ára fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps með því að hafa ekið á mann á miklum hraða í bílakjallaranum við ...
Ert þú með puttann á púlsinum? Taktu fréttakvissið - RÚV.is
📅 09.10.2026 👁️ 4
Ert þú með puttann á púlsinum? Taktu fréttakvissið - RÚV.is
Hér eru tíu spurningar úr fréttum vikunnar. Veistu hvaða bandaríski ráðherra kom í heimsókn til Íslands, hvaða land ætlar ekki að taka þátt í Eurovisi...
Dóra Sif Tynes: Bókun 35 gengur út á að Íslendingar séu jafnsettir öðrum borgurum EES
📅 09.10.2026 👁️ 4
Dóra Sif Tynes: Bókun 35 gengur út á að Íslendingar séu jafnsettir öðrum borgurum EES
Það er alveg ljóst að bókun 35 tekur aðeins til jafnsettra laga, þ.e.
Hrafnhildur hafði ekki áhyggjur af fæðingarblettinum en svo kom annað í ljós
📅 09.10.2026 👁️ 4
Hrafnhildur hafði ekki áhyggjur af fæðingarblettinum en svo kom annað í ljós
„Ég var í rauninni bara mjög heppin,“ segir Hrafnhildur sem greindist með sortuæxli.
Bein út­sending: Af minkum og mönnum - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Bein út­sending: Af minkum og mönnum - Vísir
Málþingið hefst klukkan 17 og verður hægt að fylgjast með í beinu streymi í spilaranum að neðan. „Á dagskrá verða erindi íslenskra og erlendra sérfræð...
Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar - Vísir
Þátturinn hefst klukkan 19:20 á Sýn og Vísi. Það verður nóg um að vera í þættinum þar sem margar af ástsælustu sjónvarpsstjörnum landsins rifja upp gó...
Þingmenn stálust í sund eftir lokun í kjördæmaviku
📅 09.10.2026 👁️ 4
Þingmenn stálust í sund eftir lokun í kjördæmaviku
Nokkrir þingmenn Norðausturkjördæmis skelltu sér í sund eftir lokun í Selárlaug í Vopnafirði í kjördæmaviku Alþingis í síðustu viku. Einn þeirra segir...