Sægreifar láta nú til sín taka vegna þjóðaratkvæðagreiðslu í næsta mánuði um viðræður við ESB. Sumir hrópa hátt í fjölmiðlum en aðrir vinna að tjaldabaki og leggja til fúlgur fjár til áróðurs og jafnvel skipulegra ósanninda. Einn þeirra sem hefur nú gengið fram fyrir skjöldu og lýst skoðun sinni af svipaðri smekkvísi og jafnan þegar hann tekur til máls opinberlega er Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. sem sagðist „ekki trúa því að þjóðin væri svo vitlaus að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni.“
Orðið á götunni: Sægreifar og fulltrúar sérhagsmuna vilja segja kjósendum fyrir verkum