Orðið á götunni: Hlýtur að styttast í nýjan ritstjóra Morgunblaðsins – ástandið orðið vandræðalegt - DV

Orðið á götunni: Hlýtur að styttast í nýjan ritstjóra Morgunblaðsins – ástandið orðið vandræðalegt - DV

Eigendur Morgunblaðsins reyna áfram að koma sér saman um nýjan ritstjóra blaðsins en nú eru liðnir tveir mánuðir síðan Davíð Oddsson féll frá. Þær fregnir berast að öllum sé ljóst að eftirmaður á ritstjórastólinn finnist ekki meðal starfsmanna Árvakurs. Vitað er að Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson hafa látið sig dreyma um stærri hlutverk innan útgáfunnar en hvorugur þeirra kemst nærri því að hafa burði til að gegna þessu mikilvæga og vel launaða starfi.

Í áratugi hafa eigendur Morgunblaðsins lagt höfuðáherslu á að ráða til sín þjóðþekkta ritstjóra. Stórmenni á borð við Bjarna heitinn Benediktsson og Matthías Johannessen hafa gegnt stöðu ritstjóra og aðrir öflugir sjálfstæðismenn hafa einnig komið þar við sögu eins og Sigurður Bjarnason frá Vigur, Eyjólfur Konráð Jónsson og Styrmir Gunnarsson. Eftir að Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, var endurreistur fjárhagslega eftir hrun með niðurfellingu skulda við ríkisbanka, sem jafngildir 11 milljörðum króna á núverandi verðlagi, þótti við hæfi að bjóða fyrrum forsætisráðherra ritstjórastólinn. Davíð Oddsson tók við seint á árinu 2009. Áskrifendur blaðsins voru þá um 35 þúsund en þeim fækkaði hratt við þessa ráðstöfun og eru nú komnir niður fyrir 10 þúsund.

Orðið á götunni er að leitað sé að „stóru nafni“ og helst fyrrverandi eða núverandi forystumanni Sjálfstæðisflokksins. Vandinn er sá að ekki er þar um auðugan garða að gresja. Nafn Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, alþingismanns og fyrrum ráðherra, hefur áður verið nefnt í fjölmiðlum í tengslum við ritstjórastöðuna og tilkynnt hefur verið að hún muni senn snúa heim frá Bandaríkjunum að afloknu því námskeiði sem hún hefur sótt þar á síðustu mánuðum. Áslaug er dóttir Sigurbjörns Magnússonar, sem gegnir hlutverki stjórnarformanns Árvakurs í umboði meirihlutaeigandans, Guðbjargar Matthíasdóttur auðkonu í Vestmannaeyjum. Áslaug er lögfræðingur að mennt eins og margir ritstjórar Morgunblaðsins hafa verið og hún vann sumarstörf á blaðinu með skóla. Eyjafólkið hefur verið einn helsti bakhjarl Áslaugar á stjórnmálaferli hennar. Eins og menn muna tapaði Áslaug Arna naumlega í formannskjöri í flokknum fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur í fyrra.

Ýmsum nöfnum hefur verið velt upp. Af fyrrverandi þingmönnum Sjálfstæðisflokksins hafa einhverjir staldrað við þá Sigurð Kára Kristjánsson og Illuga Gunnarsson en þeir voru á sínum tíma áberandi ungir þingmenn sem eiga það sammerkt að hafa að mestu týnst eftir að ferli þeirra á Alþingi lauk.

Sigurður Kári Kristjánsson er 53 ára lögfræðingur sem sat á þingi frá 2003 til 2009 þegar hann féll út eftir hrunið en þá galt flokkurinn afhroð í kosningum. Síðan þá hefur Sigurður Kári fengist við lögmannsstörf og átt sæti í stjórn Heimsýnar sem er áhugamannafélag um einangrun Íslands. Hann var um tíma heiðurskonsúll Ísraels og gegndi stjórnarformennsku í flugfélaginu Play þegar það fór í gjaldþrot. Forystumenn í sjávarútvegi reyndu mikið að ná samstöðu um að ráða Sigurð Kára í stöðu framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins þegar Sigríður Margrét Oddsdóttir var ráðin. Ekki reyndist vera stuðningur við Sigurð Kára hjá öðrum samtökum og Sigríður Margrét var valin í stöðu framkvæmdastjórans.

Illugi Gunnarsson er 59 ára hagfræðingur sem sat á þingi frá 2007 til 2016 í 9 ár. Hann gegndi stöðu menntamálaráðherra frá 2013 til 2016 en bauð sig ekki fram til Alþingis að nýju eftir það. Á meðan Illugi var ráðherra komu upp vandræðaleg mál vegna tengsla hans við fyrirtækið Orka Energy en hann hafði ekki getið um tengsl sín við fyrirtækið og Hauk Harðarson eiganda þess í hagsmunaskráningu Alþingis eins og þingmönnum er skylt. Þóttu fjárhagsleg tengsl hans við eiganda fyrirtækisins ekki viðeigandi en um þau var talsvert fjallað í fjölmiðlum. Eftir það var nokkuð ljóst að Illugi héldi ekki áfram á vettvangi stjórnmála. Hann hafði áður orðið fyrir óþægindum vegna aðkomu sinnar að Sjóði 9 hjá Glitni fyrir hrun. Eftir stjórnmálaferilinn hefur Illugi m.a. komið við sögu í stjórn Byggðastofnunar og hjá Orkubúi Vestfjarða en ekki verið mjög sýnilegur við önnur viðfangsefni.

Orðið á götunni er að þeir Illugi og Sigurður Kári séu einlægir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins þótt áhrifa þeirra gæti ekki lengur í forystu hans. Engu að síður er ósennilegt að eigendur Morgunblaðsins treysti sér til að fela þeim hið mikilvæga embætti ritstjóra blaðsins – þá skorti báða trúverðugleika til þess og að þeir verði í engu bornir saman við fyrri ritstjóra blaðsins.

Það þyrfti því ekki að koma á óvart að niðurstaða eiganda Árvakurs verði sú að ráða Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur ritstjóra Morgunblaðsins.

#morgunblaðsins #vandræðalegt #ritstjóra #styttast #ástandið


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/eyjan/2026/4/28/ordid-gotunni-hlytur-ad-styttast-nyjan-ritstjori-morgunbladsins-astandid-ordid-vandraedalegt/

📰 Aðrar fréttir

Spyr hvers vegna SA og Viðskiptaráð hafi kúvent - „Ekki vegna heildarhagsmuna atvinnulífsins í landinu“ - DV
📅 30.04.2026 08:00:57 👁️ 0

Spyr hvers vegna SA og Viðskiptaráð hafi kúvent - „Ekki vegna heildarhagsmuna atvinnulífsins í landinu“ - DV

#heildarhagsmuna#atvinnulífsins#viðskiptaráð#landinu#kúvent
Forseti Írans segir hafnarbann Bandaríkjanna dæmt til að mistakast
📅 30.04.2026 07:58:19 👁️ 0

Forseti Írans segir hafnarbann Bandaríkjanna dæmt til að mistakast

#bandaríkjanna#hafnarbann#mistakast#forseti#írans
Bein út­sending: Ræða markmiðadrifði hag­kerfi í þaula - Vísir
📅 30.04.2026 07:46:59 👁️ 1

Bein út­sending: Ræða markmiðadrifði hag­kerfi í þaula - Vísir

#markmiðadrifði#útsending#hagkerfi#þaula#vísir
Öryggisgæsla fyrir ósakhæfa rís á Hólmsheiði
📅 30.04.2026 07:41:03 👁️ 1

Öryggisgæsla fyrir ósakhæfa rís á Hólmsheiði

#öryggisgæsla#hólmsheiði#ósakhæfa#fyrir
Vinahópur sló í gegn á sýningu stórmyndarinnar Michael - Bíóferðin hófst á sannri íslenskri hefð - DV
📅 30.04.2026 07:30:22 👁️ 0

Vinahópur sló í gegn á sýningu stórmyndarinnar Michael - Bíóferðin hófst á sannri íslenskri hefð - DV

#stórmyndarinnar#vinahópur#bíóferðin#íslenskri#sýningu
Man arrested in south Tenerife for stalking ex-partner and fitting a tracking device to her car
📅 30.04.2026 07:05:00 👁️ 1

Man arrested in south Tenerife for stalking ex-partner and fitting a tracking device to her car

#arrested#tenerife#stalking#tracking#partner
Baldur leysir Herjólf af tímabundið - DV
📅 30.04.2026 07:04:10 👁️ 1

Baldur leysir Herjólf af tímabundið - DV

#tímabundið#herjólf#baldur#leysir
Konur stunda sjálfsritskoðun vegna vísvitandi og skipulegs stafræns ofbeldis — ofbeldið ógnar heilsu kvenna
📅 30.04.2026 07:01:13 👁️ 1

Konur stunda sjálfsritskoðun vegna vísvitandi og skipulegs stafræns ofbeldis — ofbeldið ógnar heilsu kvenna

#sjálfsritskoðun#vísvitandi#skipulegs#stafræns#ofbeldis
Regn­bogafánar, jafnaðar­geð og val­kyrju­vá í Hafnar­firði - Vísir
📅 30.04.2026 07:00:58 👁️ 1

Regn­bogafánar, jafnaðar­geð og val­kyrju­vá í Hafnar­firði - Vísir

#regnbogafánar#jafnaðargeð#hafnarfirði#valkyrjuvá#vísir
Skúrir og slydduél vestan til en bjart austan til
📅 30.04.2026 06:57:11 👁️ 1

Skúrir og slydduél vestan til en bjart austan til

#slydduél#skúrir#vestan#austan#bjart
Bæjarfulltrúar í Kópavogi sagðir ekki hafa vitað um samning bæjarins við Samtökin ’78 – Ókjörnir embættismenn skuldbundu bæinn til margra ára
Trump segist vera að í­huga að draga saman seglinn í Þýska­landi - Vísir
📅 30.04.2026 06:35:59 👁️ 1

Trump segist vera að í­huga að draga saman seglinn í Þýska­landi - Vísir

#þýskalandi#seglinn#segist#trump#íhuga
Why Industrial Workwear and PPE are the backbone of a safe business
📅 30.04.2026 06:35:00 👁️ 1

Why Industrial Workwear and PPE are the backbone of a safe business

#industrial#workwear#backbone#business#safe
Samtök gyðinga vöruðu við því að hryðjuverkaárás kynni að vera yfirvofandi
📅 30.04.2026 06:30:26 👁️ 1

Samtök gyðinga vöruðu við því að hryðjuverkaárás kynni að vera yfirvofandi

#hryðjuverkaárás#yfirvofandi#gyðinga#samtök#vöruðu
Jet2 backs Greece’s move to stop Biometric checks for British tourists
📅 30.04.2026 06:19:00 👁️ 1

Jet2 backs Greece’s move to stop Biometric checks for British tourists

#biometric#tourists#british#greece#checks
Þorsteinn Pálsson skrifar: Orsök kúvendingar í Húsi atvinnulífsins - DV
📅 30.04.2026 06:00:47 👁️ 2

Þorsteinn Pálsson skrifar: Orsök kúvendingar í Húsi atvinnulífsins - DV

#atvinnulífsins#kúvendingar#þorsteinn#pálsson#skrifar
Einn handtekinn fyrir þjófnað og annar fyrir ólöglega dvöl í landinu
📅 30.04.2026 06:00:26 👁️ 2

Einn handtekinn fyrir þjófnað og annar fyrir ólöglega dvöl í landinu

#handtekinn#ólöglega#þjófnað#landinu#fyrir
THURSDAY WEATHER: Light cloud, sunshine and rising temperatures
📅 30.04.2026 05:59:00 👁️ 1

THURSDAY WEATHER: Light cloud, sunshine and rising temperatures

#temperatures#thursday#sunshine#weather#rising
What we know about the double stabbing in Golders Green, north London
📅 30.04.2026 05:37:58 👁️ 1

What we know about the double stabbing in Golders Green, north London

#stabbing#golders#double#london#about
Bandaríkjamenn afhenda hundruð stolinna fornminja
📅 30.04.2026 05:30:26 👁️ 1

Bandaríkjamenn afhenda hundruð stolinna fornminja

#bandaríkjamenn#fornminja#stolinna#afhenda#hundruð
BBC obtains Northamptonshire Police video of woman's arrest
📅 30.04.2026 05:29:41 👁️ 1

BBC obtains Northamptonshire Police video of woman's arrest

#northamptonshire#obtains#police#arrest#video
'We will kill you and burn your house': Council staff under attack from High Street gangs
📅 30.04.2026 05:00:04 👁️ 1

'We will kill you and burn your house': Council staff under attack from High Street gangs

#council#attack#street#house#staff
Verð á Brent-Norðursjávarolíu komið yfir 125 bandaríkjadali tunnan — Bandaríkjaforseta kynnt ný hernaðaráætlun í dag
📅 30.04.2026 04:47:09 👁️ 1

Verð á Brent-Norðursjávarolíu komið yfir 125 bandaríkjadali tunnan — Bandaríkjaforseta kynnt ný hernaðaráætlun í dag

#bandaríkjaforseta#norðursjávarolíu#bandaríkjadali#hernaðaráætlun#tunnan
Trump hótar að fækka hermönnum vegna andstöðu Merz við stríðsreksturinn í Íran
📅 30.04.2026 04:45:13 👁️ 1

Trump hótar að fækka hermönnum vegna andstöðu Merz við stríðsreksturinn í Íran

#stríðsreksturinn#hermönnum#andstöðu#trump#hótar
Oil jumps to highest price since 2022 after report Trump to be briefed on new Iran options
📅 30.04.2026 04:06:01 👁️ 1

Oil jumps to highest price since 2022 after report Trump to be briefed on new Iran options

#highest#briefed#options#report#jumps
Sérstakur erindreki Bandaríkjanna væntanlegur á ráðstefnu Viðskiptaráðs í Nuuk en ekki í boði þess
📅 30.04.2026 04:00:33 👁️ 1

Sérstakur erindreki Bandaríkjanna væntanlegur á ráðstefnu Viðskiptaráðs í Nuuk en ekki í boði þess

#bandaríkjanna#viðskiptaráðs#væntanlegur#sérstakur#erindreki
Have the royals got their mojo back from US visit?
📅 30.04.2026 03:48:53 👁️ 1

Have the royals got their mojo back from US visit?

#royals#their#visit#have#mojo
Kenya's Sabastian Sawe welcomed home in chaotic celebrations
📅 30.04.2026 03:15:16 👁️ 1

Kenya's Sabastian Sawe welcomed home in chaotic celebrations

#celebrations#sabastian#welcomed#chaotic#kenya
Ísland minna berskjaldað gegn truflun á aðfangakeðjum en brýnt að efla öryggi til framtíðar
📅 30.04.2026 03:15:13 👁️ 1

Ísland minna berskjaldað gegn truflun á aðfangakeðjum en brýnt að efla öryggi til framtíðar

#aðfangakeðjum#berskjaldað#framtíðar#truflun#ísland
Að minnsta kosti 17 flóttamenn taldir af undan strönd Líbíu
📅 30.04.2026 02:26:20 👁️ 1

Að minnsta kosti 17 flóttamenn taldir af undan strönd Líbíu

#flóttamenn#minnsta#taldir#strönd#kosti
BBC visits US and UK military base in Iraq as ceasefire continues
📅 30.04.2026 01:46:52 👁️ 1

BBC visits US and UK military base in Iraq as ceasefire continues

#ceasefire#continues#military#visits#base
Bondi Beach shooting: Royal commission interim report says gun reform should be prioritised
📅 30.04.2026 01:26:28 👁️ 1

Bondi Beach shooting: Royal commission interim report says gun reform should be prioritised

#prioritised#commission#shooting#interim#report
Trump segir herkví um Íran geta varað í marga mánuði til viðbótar
📅 30.04.2026 01:06:59 👁️ 1

Trump segir herkví um Íran geta varað í marga mánuði til viðbótar

#viðbótar#herkví#mánuði#trump#segir
Meta shares slide as investors weigh Big Tech's AI spending spree
📅 30.04.2026 00:48:47 👁️ 1

Meta shares slide as investors weigh Big Tech's AI spending spree

#investors#spending#shares#slide#weigh
Endometriosis: New scan technique shows promise for earlier detection
📅 30.04.2026 00:08:59 👁️ 1

Endometriosis: New scan technique shows promise for earlier detection

#endometriosis#technique#detection#promise#earlier
The city caught in the middle of the big energy shift debate
📅 30.04.2026 00:08:10 👁️ 1

The city caught in the middle of the big energy shift debate

#caught#middle#energy#debate#shift
Big US tech stocks swing as investors probe AI spending
📅 29.04.2026 23:53:16 👁️ 1

Big US tech stocks swing as investors probe AI spending

#investors#spending#stocks#swing#probe
Ísraelsher stöðvar för 80 báta
📅 29.04.2026 23:52:27 👁️ 1

Ísraelsher stöðvar för 80 báta

#ísraelsher#stöðvar#báta
Interest rates expected to be held as uncertainty over impact of Iran war continues
📅 29.04.2026 23:01:04 👁️ 1

Interest rates expected to be held as uncertainty over impact of Iran war continues

#uncertainty#continues#interest#expected#impact
Ein­huga um að lengja gildis­tíma öku­skír­teina - Vísir
📅 29.04.2026 23:00:14 👁️ 1

Ein­huga um að lengja gildis­tíma öku­skír­teina - Vísir

#ökuskírteina#gildistíma#einhuga#lengja#vísir
US singer D4vd bought tools online to dispose of girl's body, prosecutors say
📅 29.04.2026 22:59:30 👁️ 1

US singer D4vd bought tools online to dispose of girl's body, prosecutors say

#prosecutors#dispose#singer#bought#online
Oil price briefly hits $120 after reports of 'extended' Iran blockade
📅 29.04.2026 22:49:19 👁️ 1

Oil price briefly hits $120 after reports of 'extended' Iran blockade

#extended#blockade#briefly#reports#price
Baldur fer til Eyja
📅 29.04.2026 22:37:37 👁️ 1

Baldur fer til Eyja

#baldur#eyja
Margir í óheilbrigðu sambandi án þess að átta sig á því
📅 29.04.2026 22:26:04 👁️ 1

Margir í óheilbrigðu sambandi án þess að átta sig á því

#óheilbrigðu#sambandi#margir#þess#átta
Baldur til Eyja - Vísir
📅 29.04.2026 22:25:58 👁️ 1

Baldur til Eyja - Vísir

#baldur#vísir#eyja
Bílstjórar BSO kveðja miðbæinn með trega
📅 29.04.2026 22:15:07 👁️ 1

Bílstjórar BSO kveðja miðbæinn með trega

#bílstjórar#miðbæinn#kveðja#trega
Sel­tjarnar­nes heldur á­fram að tapa - Vísir
📅 29.04.2026 22:14:02 👁️ 1

Sel­tjarnar­nes heldur á­fram að tapa - Vísir

#seltjarnarnes#heldur#áfram#vísir#tapa
„Þetta er gríðar­legt högg fyrir þessi minni bæjar­fé­lög“ - Vísir
📅 29.04.2026 22:13:33 👁️ 1

„Þetta er gríðar­legt högg fyrir þessi minni bæjar­fé­lög“ - Vísir

#gríðarlegt#bæjarfélög#þetta#fyrir#þessi
Húsnæði „kaupmannsins á horninu“ í Vesturbæ til sölu - DV
📅 29.04.2026 21:59:10 👁️ 1

Húsnæði „kaupmannsins á horninu“ í Vesturbæ til sölu - DV

#kaupmannsins#vesturbæ#húsnæði#horninu#sölu
Police body cam shows moment Golders Green suspect Tasered
📅 29.04.2026 21:53:51 👁️ 1

Police body cam shows moment Golders Green suspect Tasered

#golders#suspect#tasered#police#moment