Það skýrist betur og betur hve alvarleg mistök forysta bænda gerði í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB í síðasta mánuði. Lagt var að bændum landsins að vera þverir á móti og stóðu þeir í því að menga sveitir landsins með því að setja NEI-áróður á heysátur sínar. Hér var á ferðinni skefjalaus og vanhugsaður áróður sem var bændum og samtökum þeirra til minnkunar. Samtök bænda létu einnig gera einhliða áróðursskýrslu sem einungis tíndi til neikvæðar hliðar mögulegrar aðildar að ESB en lét hjá líða að geta um alla kostina. Einkar ómerkileg vinnubrögð þar á ferðinni.
Orðið á götunni: Bændur þurfa ekki ríkisstyrki - Við getum þetta sjálf sögðu þeir í þjóðaratkvæðagreiðslunni