Óprúttinn aðili reyndi að komast inn á baðherbergi heimilis í Hafnarfirði eða Garðabæ í dag en inni á baðherberginu var húsráðandi.Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Þar segir meðal annars um verkefni lögreglustöðvar tvö sem sér um löggæslu í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi:„Tilkynnt um mann með bakpoka sem hafði komið óboðinn inn í íbúð og reynt að fara á baðherbergið sem húsráðandi var á. Aðilinn komst ekki inn á baðherbergið þar sem hurðin var læst og hljóp maðurinn þá í burtu úr íbúðinni. Fannst ekki þrátt fyrir leit.“
Óprúttinn aðili reyndi að komast óboðinn inn á baðherbergi þar sem húsráðandi var