Opnunartími Sundhallarinnar í Reykjavík verður skertur á virkum dögum frá og með morgundeginum og þar til viðgerðum á búningsklefum laugarinnar lýkur.
Framkvæmdir hafa staðið yfir í klefunum um nokkra hríð. Á meðan hafa karlar notað gamla búningsklefann á neðri hæð hússins – gamla kvennaklefann – sem er mjög þröngur. Konur hafa notað báða útiklefana. Þessir klefar rúma samanlagt aðeins um 60 manns. Nú þegar skólasund hefst að nýju þarf því að loka lauginni fyrir almenningi þann tíma dags sem skólasundið fer fram.
Stefnt er að því að viðgerðum í kvennaklefanum ljúki síðar í haust og þá verður hægt að færa opnunartímann í eðlilegt horf.
Nokkur tími gæti þó liðið þar til karlar fá aftur sinn hefðbundna klefa.
Snorri Örn Arnaldsson, forstöðumaður Sundhallarinnar, segir í samtali við fréttastofu að skemmdir í karlaklefanum hafi reynst mun umfangsmeiri en búist var við. „Það kom upp leki í fyrra og fór allt vorið í að gera upp þakið. Síðan hefur þetta verkefni stækkað,“ segir hann. Því er óvíst hvenær hægt verður að opna karlaklefann.
Síendurteknar viðgerðir hafa verið í Sundhöllinni síðustu misseri. Laugin var lokuð í mánuð í sumar vegna viðhalds.