Öllum í áhöfn Bandero, skips Paul Watson-samtakanna, hefur verið birt ákvörðun um brottvísun og endurkomubann. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglu.
Fyrir ríkisborgara utan EES felur ákvörðunin í sér endurkomubann á allt Schengen-svæðið, en fyrir EES-borgara takmarkast endurkomubannið við Ísland. Endurkomubannið er að lágmarki 2 ár. Gildistími þess hefst við brottför.
Áhöfnin hefur fengið leyfi til að yfirgefa skipið en er gert að sæta tilkynningarskyldu til lögreglu þar til ákvörðunin kemur til framkvæmda.
Heimferða- og fylgdardeild ríkislögreglustjóra mun sjá um framkvæmd brottvísunarinnar.
Áhöfnin var handtekin í síðustu viku eftir að hafa reynt að trufla för hvalveiðiskipsins Hvals 9. Landhelgisgæslan yfirtók skipið á fimmtudagskvöld og sigldi því til hafnar í Reykjavík á föstudag.