Nafnlaus heimildarmaður Nútímans, sem áður tilheyrði Samtökunum ’78, gagnrýnir að ekkert aldurstakmark sé tilgreint fyrir hraðstefnumót Hinsegin daga. Hún segir óljóst hvernig tryggja eigi öryggi barna og unglinga eða koma í veg fyrir óviðeigandi samskipti þeirra við fullorðna þátttakendur.
Hinsegin dagar hafa auglýst sérstök hinsegin hraðstefnumót sem fara eiga fram á Regnboganum í Bíó Paradís fimmtudaginn 6. ágúst klukkan 19.
Í auglýsingu viðburðarins segir að öll séu velkomin, óháð aldri eða kyni:
„Ert þú einhleyp/ur/t og í leit að ástinni? Eða langar þig bara að kynnast nýju fólki? Við höldum hinsegin hraðstefnumót fimmtudaginn 6. ágúst kl. 19:00 á Regnboganum í Bíó Paradís. Öll eru velkomin óháð aldri eða kyni.“
Þátttakendur eru beðnir um að senda nafn, aldur og netfang við skráningu. Einnig kemur fram að hægt sé að skrá sig við komu og að viðburðurinn fari fram á ensku.
Ekki kemur fram í auglýsingunni hvort þátttakendum verði skipt í aldurshópa, hvort börn þurfi samþykki eða fylgd forráðamanna eða hvaða reglur gildi um samskipti ólögráða og fullorðinna þátttakenda.
Segir lýsinguna vekja ugg
Nútíminn hefur fengið ábendingu frá konu sem segist áður hafa tilheyrt hinseginsamfélaginu og Samtökunum ’78. Hún segist mjög uggandi yfir því að viðburður sem auglýstur sé sem hraðstefnumót skuli sagður opinn öllum aldurshópum.
„Ég er óviss um hvað viðburðarstjórnendur eru eiginlega að hugsa með þessu og af hverju þau sjá ekki sómann í því að halda börnum og unglingum utan við þetta,“ segir heimildarmaðurinn.
Hún telur ekki nægilegt að gera ráð fyrir því að þátttakendum verði mögulega skipt niður á sérstök borð eftir aldri.
„Kannski verður þetta aldursskipt, en það á í raun ekki að blanda þessum viðburðum saman. Börn og unglingar eiga ekki að vera í fullorðinslegu ‘speed dating’. Þau eiga að hittast sem krakkar án þess að slík pressa sé sett á þau.“
Helstu áhyggjur hennar snúa að því að félagslega einangraðir eða berskjaldaðir unglingar geti mætt á viðburðinn og komist þar í beina snertingu við fullorðna einstaklinga sem þeir þekkja ekki.
„Það þarf að hugsa þetta út frá öryggi barnanna og tryggja að berskjaldaðir unglingar verði ekki á vegi fullorðinna einstaklinga sem kunna að ganga með annarlegar fyrirætlanir,“ segir hún.
Spyr hver ákveði aldurspörunina
Heimildarmaðurinn segir jafnframt óljóst hvernig pörun þátttakenda eigi að fara fram ef engin neðri aldursmörk gilda.
„Er það viðburðarstjórnenda að ákveða hvort 14 ára og 17 ára þátttakendur séu paraðir saman í spjall? Sérstakt ‘barnaborð’ meikar heldur ekki sens í samhengi við hraðstefnumót,“ segir hún.
Hún óttast sérstaklega að foreldrar barna sem glíma við einangrun, kynhneigðar- eða kynáttunarvanda geti treyst því að viðburðurinn sé viðeigandi fyrir börn vegna tengingarinnar við Hinsegin daga.
„Foreldrar kunna að líta svo á að þetta séu virt samtök sem viti hvað þau séu að gera. Þess vegna þarf lýsingin að vera algjörlega skýr um aldurstakmörk, aldursskiptingu og öryggisráðstafanir,“ segir hún.
Hraðstefnumót Bíó Paradís hafa almennt verið auglýst fyrir afmarkaða aldurshópa. Á vef kvikmyndahússins hafa til dæmis verið skráðir sérstakir viðburðir fyrir fólk á aldrinum 30–40 ára, 45–55 ára og 50–60 ára. Viðburður Hinsegin daga sker sig því úr að þessu leyti, enda er hann beinlínis sagður opinn fólki óháð aldri.
Ekki liggur fyrir hvort orðalag auglýsingarinnar sé ónákvæmt eða hvort börnum sé í reynd ætlað að taka þátt ásamt fullorðnum. Þá liggur heldur ekki fyrir hvort viðburðarstjórar hyggist skipta þátttakendum niður eftir aldri eða viðhafa sérstakt eftirlit vegna ólögráða þátttakenda.