Bandaríski tónlistarmaðurinn Oliver Tree, sem lést í þyrluslysi í Brasilíu um helgina, talaði opinskátt um dauðann í viðtali fyrir nokkrum mánuðum.
Í viðtalinu upplýsti hann meðal annars að erfðaskrá hans væri tilbúin og hvernig hann vonaðist til að hans yrði minnst þegar kallið kæmi.
News.co.au rifjar þetta upp í umfjöllun á vef sínum í morgun.
Fjölskyldan myndi ekki erfa hann
Tree, sem var 32 ára og vinsæll tónlistarmaður og skemmtikraftur, lýsti því yfir í fyrrnefndu viðtali að hann vildi að auður hans myndi nýtast öðrum listamönnum eftir dauða sinn.
Ræddi hann opinskátt um erfðaskrá sína og sagði að fjölskylda hans myndi ekki erfa eignir hans. Þess í stað hefði hann sett sér það markmið að fjármunir hans rynnu í sjóð sem styddi unga og efnilega listamenn.
Sjá einnig: Mikil sorg eftir dauða Oliver Tree – Vitni lýsir því sem það sá
„Þegar ég dey mun fjölskyldan mín ekki fá eina einustu krónu,“ sagði Tree í viðtalinu í þættinum The Zach Sang Show í apríl síðastliðnum. Hann bætti við að ef hann eignaðist börn myndi hann sjá til þess að þau fengju menntun, en hann vildi ekki að þau myndu fæðast með silfurskeið í munni.
Tree sagðist hafa ætlað að láta tekjur af tónlist sinni og öðrum verkefnum renna í sérstakan listasjóð sem hann nefndi Dr. Oliver Tree’s Art Grants for Baby Geniuses. Hugmyndin var að sjóðurinn veitti ungum og upprennandi listamönnum styrki og vinir hans og nánustu ættingjar myndu taka þátt í að velja styrkþega.
„Hugmyndin er sú að þegar ég dey fari allir peningarnir aftur til listamanna,“ sagði hann.
„Þegar maður er ekki lengur til staðar“
Tónlistarmaðurinn taldi jafnframt líklegt að verk hans myndu halda áfram að skapa tekjur eftir andlát hans og jafnvel aukast að verðmæti með tímanum.
„Fólk mun loksins kunna að meta heimskulegu myndböndin mín og heimskulegu lögin mín. Það er þá sem fólk kann að meta mann, þegar maður er ekki lengur til staðar,“ sagði hann.
Ekki liggur fyrir hvort sjóðurinn hafi verið formlega stofnaður áður en Tree lést. Engar opinberar upplýsingar hafa enn komið fram um hvernig bú hans verður gert upp eða hvort fyrirætlanir hans um listasjóðinn verði að veruleika.
Oliver Tree naut mikilla vinsælda fyrir lög á borð við Life Goes On, Miss You og Alien Boy. Hann var þekktur fyrir sérstæðan stíl sinn, kaldhæðinn húmor og óhefðbundna nálgun að tónlist og samfélagsmiðlum.
Andlát hans hefur vakið mikla athygli um allan heim og fjölmargir aðdáendur og samstarfsmenn hafa minnst hans á samfélagsmiðlum.