Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gærkvöld ályktun þess efnis að Bandaríkjaforseti stöðvi hernaðaraðgerðir í Íran. Tillagan var samþykkt í fulltrúadeild þingsins fyrr í mánuðinum en repúblikanar fara með meirihluta í báðum deildum.
Fjórir öldungadeildarþingmenn úr röðum repúblikana greiddu atkvæði með tillögunni. Það þykir til marks um auknar áhyggjur af frekari átökum og af afdrifum vopnahléssamkomulagsins frá því í apríl.
Ályktunin er þó aðeins táknræn. Hún ratar ekki á borð forsetans til undirritunar og bindur því ekki hendur hans. Með ályktuninni sendir þingið aftur á móti skýr skilaboð um að það sé mótfallið frekari stríðsátökum.
Niðurstaðan er auk þess ákveðið pólitískt áfall fyrir Trump sem hingað til hefur notið nær einróma stuðnings þingmanna Repúblikanaflokksins.
Búist er við því að ríkisstjórn Trumps óski bráðlega eftir samþykki þingsins fyrir 80 milljarða dala fjárveitingu til stríðsmálaráðuneytisins. Féð á einkum að nýta til að fylla á vopnabúr hersins í kjölfar stríðsins í Íran.
Rætt um friðarsamkomulag í Sviss
Á dögunum lauk fyrstu lotu samningaviðræðna milli Bandaríkjanna og Íran um endanlegt friðarsamkomulag. Viðræður voru haldnar í Sviss.
Stefnt er að því að lokasamkomulag um frið verði frágengið innan tveggja mánaða.
Viðræðum milli Bandaríkjanna og Íran með milligöngu Pakistana og Katara verður framhaldið í vikunni.