Tilkynnt var í nótt um ökumenn í spyrnu á um 190 kílómetra hraða í umdæmi lögreglustöðvar 1 sem sinnir Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og Seltjarnarnesi. Lögregla fór á vettvang og ræddi við ökumenn.
Þó nokkur erill var hjá lögreglu í nótt, aðallega í og við miðbæinn.
Tilkynnt var um mann með rafbyssu í fórum sínum í miðbæ Reykjavíkur. Lögregla leitaði að manninum en fann hvorki hann né rafbyssuna.
Tilkynnt var einnig um mann sem barði í bifreiðar og ónáðaði fólk. Lögregla fór á vettvang og var maðurinn handtekinn fyrir ölvun og óspektir á almannafæri. Hann var látinn gista í fangaklefa þar sem hann var ekki hæfur til að vera úti á meðal almennings vegna ástands síns.
Brotist var þá inn í hljóðfæraverslun og fór lögregla á vettvang til að rannsaka málið en gerendur voru farnir af vettvangi þegar hana bar að garði. Málið er til rannsóknar.
Í öðrum umdæmum lögreglu var það helst akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Í umdæmi lögreglustöðvar 4 sem þjónar Grafarvogi, Mosfellsbæ og Árbæ var tilkynnt um mann sem reyndi að komast inn í heimahús. Þegar lögregla kom á vettvang reyndist hann ölvaður og talið var víst að hann væri að fara húsavillt. Honum var þá vísað á sitt rétta heimili.