Okkar McCartney, okkar Bach kveður - Vísir

Okkar McCartney, okkar Bach kveður - Vísir

Okkar McCartney, okkar Bach kveður - Vísir

„Hugsið ykkur hvað þessir meistarar og vinir okkar hafa gefið okkur mikið og glatt okkur og huggað,“ segir Óli Palli. Þegar fráfall Gunnars spurðist í morgun var sem íslenskum tónlistarunnendum væri öllum lokið.

Séra Hildur Eir Bolladóttir orðar þetta ágætlega í kveðju á Facebook en hún biður Guð að blessa minningu Gunnars: „Tónlist hans hefur verið ófáum brúðhjónum hvatning til að vera í alvörunni saman. Náðargjafir manna eins og Gunna Þórðar eru óþrjótandi auðlindir sem kynslóð eftir kynslóð fær notið og nýtt í sorg sinni og gleði.“

Franz Gunnarsson tónlistarmaður segir stutt stórra högga á milli þessi misserin: „Meistari Gunnar Þórðarson er farinn á hærra stig vitundar með gítarinn í farteskinu. Það þarf engin lýsingarorð til að skýra hversu magnaður þessi risi í tónlistinni var. Músíkin hans sér algjörlega um það.“

Jöfrar íslenskrar tónlistar hverfa einn af öðrum

Krummi Björgvinsson, sem fyrir skömmu fylgdi föður sínum Björgvini Halldórssyni til grafar, segir að fréttirnar hafi verið sér þungbærar og sárar.

„Þeir voru nánir vinir og samstarfsfélagar og unnu saman í tónlist í nokkra áratugi. Gunnar var einstakur tónlistarsnillingur og úr samstarfi þeirra urðu til mörg af ástsælustu og fallegustu lögum íslenskrar tónlistarsögu.“

Gunnar ásamt Álfrúnu Örnólfsdóttur við upptökur á plötu með tónlistinni úr söngleiknum Dísu ljósálfi. Gunnar leit alltaf á sig sem melódíukarl.Vísir/GVA

Krummi segir að sem lítill drengur hafi hann átt margar góðar stundir á heimili Gunnars og Toby Sigrúnar Herman, eiginkonu Gunnars, á Ránargötunni þar sem Gunnar var með hljóðver sitt.

„Þar fékk ég oft að fylgjast með honum og pabba við störf. Gunnar var alltaf einstaklega hlýr og góður við mig og kenndi mér ýmislegt sem ég mun ávallt vera þakklátur fyrir. Það var mér mikill heiður að taka upp mína eigin útgáfu af Vetrarsól, sem Gunnar samdi við texta Ólafs Hauks Símonarsonar og pabbi söng svo fallega. Ég er stoltur af þeirri útgáfu og það mun alltaf ylja mér að bæði Gunnar og pabbi sögðu mér hversu ánægðir þeir væru með útgáfuna.“

Meðal þeirra sem tjá sig á Facebook-síðu Krumma er Jón Ólafsson tónlistarmaður: „Þetta er erfitt ár; stórmenni íslenskrar tónlistar falla nú frá, hvert á fætur öðru.“ Jón segir Gunnar hafa verið hetju æsku sinnar, fyrirmynd og besta lagasmið í heimi. „Þeir hverfa nú hver á fætur öðrum, jöfrar íslenskrar tónlistar. Þetta ár, maður. 2026.“

Maður sem kunni til verka og gerði gagn

Egill Eðvarpsson myndlistarmaður og kvikmyndaframleiðandi var náinn vinur Gunnars og hann ritar kveðjuorð á Facebook-síðu sína:

„Þegar ég, smá putti, spurði afa eitt sinn hvað honum fyndist að ég ætti að verða þegar ég yrði stór, svaraði hann. Það skiptir engu hvað þú verður, drengur minn. Þú verður bara að gera gagn, gagnast landi og þjóð. Afi var hörkuduglegur verkamaður alla sína ævi, náði 100 ára aldri og gerði gagn.

Gunnar Þórðarson ásamt Diddú fyrir flutning á Brynjólfsmessu í Grafarvogskirkju árið 2006. Gunnar lét sér fáar tónlistarstefnur óviðkomandi.Vísir/Vilhelm

Í gær kvaddi þessa veraldlegu tilvist okkar einn minn tryggasti vinur til 55 ára, Gunnar Þórðarson, hljómlistarmaður og tónskáld. Og Gunni var einn þeirra sem svo sannarlega gerðu gagn. Einhver fjölhæfasti tónlistarmaður sem þjóðin hefur nokkru sinni eignast, atorkusamur verkmaður í höll tónlistargyðjunnar, sem skilur eftir sig ógrynni af glitrandi tónlistarperlum, tónlistargulli og gersemum, sem munu lifa með þjóðinni um ókominn tíma… gagnast okkur öllum og gleðja svo um munar.“

Egill kveður Gunnar og þakkar honum fyrir allt: „Tónlistina, samstarfið, vináttuna og væntumþykjuna. Þú varst mér sönn fyrirmynd. Maður sem kunni til verka… og gerði gagn!“

Óð á Ragga en Gunnar var stóískur

Felix Bergsson útvarpsmaður segir Egil skrifa svo fallega um vin sinn genginn. Sjálfum þótti honum undurvænt um Gunnar og var alltaf þakklátur fyrir það hvernig hann og Björgvin Halldórsson tóku honum sem ungum listamanni: „Gunni kom mér alltaf fyrir sjónir sem einstakt ljúfmenni og það var mikill heiður að fá tækifæri til að vinna með honum. Hann var auðvitað meistari poppsins og perlurnar hans munu lifa um alla tíð. Minning Gunnars Þórðarsonar lifir í ljósinu.”

Dr. Arnar Eggert Thoroddsen segir nú risana falla einn af öðrum. „Ég kynntist Gunnari ágætlega í gegnum tónlistarblaðamannastörf mín á Morgunblaðinu á fyrsta áratug þessarar aldar. Hann var feiminn maður en ávallt kurteis og áran með honum góð. Ég tók fjölda viðtala við hann, vegna Hljóma, Ríó, sólóefnis o.s.frv. og með tíð og tíma þróaðist traust.“

Gunnar með gítarinn sem var hans helsta hljóðfæri. Vísir/GVA

Arnar rifjar upp ævintýralegt viðtal sem hann tók við Gunnar þegar hann og Ragnar Bjarnason voru að koma á framfæri jólaplötu sem þeir voru að senda frá sér:

„Ég hef aldrei á ævinni hitt ólíkari menn. Það óð á Ragga en Gunnar var stóískur, vinalegur og hélt hlutunum á jörðinni,“ segir Arnar og sendir samúðarkveðjur til vina og fjölskyldu: „Og ég nefni auðvitað snilldargáfu hans á lagasmíðasviðinu en þar átti hann fáa sína líka. Fyrstu tvö útgefnu lög Hljóma 1965, „Fyrsti kossinn“ og „Bláu augun þín“ sanna það allt saman. Fyrra lagið er sígrænn rokkari, hið síðara sígræn ballaða. Ótrúleg lög bæði tvö.“

Á engan sinn líka, kannski í öllum heiminum

Margrét Eir söngkona kveður Gunnar með þakklæti í hjarta: „Takk fyrir dásamlega tónlist sem hefur gefið mér innblástur og gert mig að þeirri söngkonu sem ég er í dag.“ Og það gerir Sigríður Thorlacius söngkona einnig.

„Það er stórt en verðugt, gefandi og gott verkefni að kynna öll ótrúlegu lögin hans Gunna fyrir litla besta 4 ára manninum mínum og að útskýra fyrir honum að öll þessi lög sem við erum alltaf að hlusta á í bílnum, öll þessi lög sem við höfum hlustað á síðan hann var ómálga, öll uppáhalds lögin og hin lögin sem hann er um það bil að fara að kynnast séu öll eftir þennan eina sama ótrúlega mann. Góða ferð í ljósið, kæri Gunnar Þórðarson, og takk fyrir allar þínar miklu, stóru, óendanlegu gjafir.“

Gunnar Þórðarson var valinn borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2014. Um það leyti hafði óperan Ragnheiður slegið í gegn.Vísir/Daníel

Freyr Eyjólfsson útvarps- og tónlistarmaður er aðdáandi Gunnars eins og líklega allir þeir sem unna tónlist. Hann kann að orða það: „Gunnar Þórðarson var snillingur. Hann á sér engan sinn líka, kannski í öllum heiminum. Framúrskarandi á öllum sviðum; gítarleikari, útsetjari, lagahöfundur. Bjó til rokk, popp, óperur, jazz, diskó, þjóðlagatónlist, raftónlist af einstakri náðargáfu og snilld.“

Freyr segist eiginlega ekki eiga orð þegar hann hugsar til ferils Gunnars, allra hæfileikanna og allrar þeirrar tónlistar sem frá honum kom: „Þrátt fyrir sína miklu og stórkostlegu yfirburði var hann hæglátur, hógvær og ljúfur í öllum samskiptum sem ég átti við hann. Takk fyrir mig. Hlustið á þetta lag – Bláu augun þín – 18 ára gamall. Hljómasamsetningin, gítarleikurinn. Snilld.“

Lögin dúndrast inn í þjóðarsálina

Páll Óskar segir einfaldlega: Takk, meistari! „Takk fyrir allar gjafirnar sem streymdu frá þér til okkar hinna. Svo varstu líka svo cool. Hljómar voru besta bítlahljómsveitin. Trúbrot var besta hippahljómsveitin. Þú & ég voruð besta íslenska diskóið. Ragnheiður er besta íslenska óperan. Það var ekkert sem þú gast ekki tileinkað þér og alltaf var Gunna Þórðar sándið yfir þessu öllu.“

Páll Óskar segir hljómaganginn í lögum Gunnars ætíð hafa verið spennandi og óvæntan.

„Og svo kom einhver galdur í viðlögunum sem lét lögin dúndrast inn í þjóðarsálina. Poppið þitt var flókið, en hljómaði svo auðvelt. Bestu listaverkin eru alltaf þannig. Þessu ná ekki allir, en sá sem getur samið Þitt fyrsta bros, Bláu augun þín, Ástarsælu, Lífsgleði, Himin og jörð, Gaggó vest, Er hann birtist, Við Reykjavíkurtjörn og Vetrarsól er ekkert minna en meistari á næsta level.“

Gunnar við píanóið. Eftir hann liggur risavaxinn katalógur af dægurperlum sem fyrir löngu teljast klassískar.

Eyþór Ingi Gunnlaugsson tónlistarmaður segir að nú sé tónlistarséní og risi í íslenskri tónlistarsögu fallinn frá. „Ég fékk að vinna aðeins með Gunnari. Maður hélt niður í sér andanum þegar hann sýndi manni snilli sína. Fáir hafa gefið þjóðinni annað eins af perlum frá poppi, kántrí, rokki yfir í óperu. Sannur snillingur.”

Flaggað í hálfa stöng í Keflavík

Og bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Vilhjálmur Árnason, stingur niður penna:

„Gunnar flutti í Keflavík átta ára gamall, var einn af sonum Keflavíkur og átti ómetanlegan þátt í að móta þá einstöku tónlistarsögu sem gerir Reykjanesbæ að Bítlabænum. Lög hans og tónlist munu lifa áfram í hjörtum landsmanna um ókomin ár.“

Vilhjálmur upplýsir að hann hafi óskað eftir því að íslenski fáninn verði dreginn í hálfa stöng við ráðhús Reykjanesbæjar á Tjarnargötu og Ásbrú, sem og við aðkomuleiðir að sveitarfélaginu, í virðingarskyni við minningu hans. „Fyrir hönd Reykjanesbæjar votta ég eiginkonu hans, börnum, fjölskyldu, vinum og öllum þeim sem syrgja Gunnar mína dýpstu samúð.“

#bach #kveður #mccartney #okkar #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262915324d/okkar-mccartney-okkar-bach-kvedur

📰 Aðrar fréttir

Engar refsiheimildir við sölu ólöglegra peptíða
📅 30.10.2026 👁️ 1
Engar refsiheimildir við sölu ólöglegra peptíða
Innkirtlasérfræðingur segir að lögleg peptíð geti markað þáttaskil í lækningu og meðferð margra alvarlegra sjúkdóma. Ólöglegur innflutningur efnanna s...
Fékk á­minningu fyrir að láta maka sinna störfum í skólanum - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 1
Fékk á­minningu fyrir að láta maka sinna störfum í skólanum - Vísir
„Slíkt er með öllu óheimilt samkvæmt reglum iClean og var starfsmaðurinn áminntur skriflega. Fyrirtækið hefur upplýst Mosfellsbæ um viðbrögðin við atv...
Segir sendingu Icelandair varða við lög
📅 30.10.2026 👁️ 1
Segir sendingu Icelandair varða við lög
Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir tölvupóstsendingu flugrekstrarstjóra Icelandair til flugmanna með samningstillögu í kjaradeilu félaga...
Vilhjálmur segir sinn gamla flokk í bullandi vandræðum - Þetta sé stóra verkefnið núna
📅 30.10.2026 👁️ 2
Vilhjálmur segir sinn gamla flokk í bullandi vandræðum - Þetta sé stóra verkefnið núna
Vilhjálmur Egilsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að sinn gamli flokkur sé í bullandi vandræðum og þurfi að fara í naflaskoðun á ...
Jakob Frímann lýsir neyðarlegu atviki með Davíði Oddssyni – „Lágum í tjaldhrúgunni með höfuðin úti“
📅 30.10.2026 👁️ 2
Jakob Frímann lýsir neyðarlegu atviki með Davíði Oddssyni – „Lágum í tjaldhrúgunni með höfuðin úti“
Út er komin bókin Davíðstíminn: Sjálfstæð saga leiðtoga og lands eftir feðgana Reyni Traustason og Jón Trausta Reynisson. Koma þar fram ýmsar sögur se...
Meta semur sig frá dómsmáli um skaða samfélagsmiðla
📅 30.10.2026 👁️ 2
Meta semur sig frá dómsmáli um skaða samfélagsmiðla
Meta semur sig frá dómsmáli um skaða samfélagsmiðla Meta hefur samið utan dóm­stóla í próf­máli vegna meints skaða sam­fé­lags­miðla á ung­mennum. Ste...
Skorar á samstarfsaðila borgarinnar að halda aftur af verðhækkunum
📅 30.10.2026 👁️ 2
Skorar á samstarfsaðila borgarinnar að halda aftur af verðhækkunum
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hefur sent samstarfsaðilum og birgjum Reykjavíkurborgar áskorun um að sýna aðhald í verðlagningu á komandi misserum.„...
Stjórn­endur Sorpu slegnir - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
Stjórn­endur Sorpu slegnir - Vísir
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Gunnari Dofra Ólafssyni,sviðsstjóra þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu. Samtökin Villikettir greindu frá því að kött...
Styrkja fjarskipti á fimm stöðum á landinu
📅 30.10.2026 👁️ 2
Styrkja fjarskipti á fimm stöðum á landinu
Byggja á upp og styrkja fjarskiptainnviði á fimm stöðum á landinu. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði tvo samninga þess efnis í dag.Annar...
Starfsmaður fékk maka sinn til að sinna ræstingum í leyfisleysi
📅 30.10.2026 👁️ 2
Starfsmaður fékk maka sinn til að sinna ræstingum í leyfisleysi
Ræstingafyrirtækið iClean gaf út vinnustaðaskírteini fyrir allt starfsfólk sitt eftir vinnustaðaeftirlit Eflingar í grunnskólum Mosfellsbæjar í haust....
Peningarnir frá Britney hættu að berast – Nú er fyrrverandi eiginmaðurinn í vondum málum
📅 30.10.2026 👁️ 2
Peningarnir frá Britney hættu að berast – Nú er fyrrverandi eiginmaðurinn í vondum málum
Kevin Federline, fyrrverandi eiginmaður poppstjörnunnar Britney Spears, stendur nú frammi fyrir málsókn vegna skulda upp á fleiri milljónir króna.Máls...
Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 3
Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna - Vísir
Líkt og Vísir hefur fjallað um gaf Héraðssaksóknari nýverið út ákæru á hendur þeim Vytautas Saslauskas og Arturas Sodys ásamt 68 öðrum fyrir umfangsmi...
Biðst afsökunar og lætur sig hverfa af X - Hvatti til að kjarnorkuvopn væru gerð klár
📅 30.10.2026 👁️ 3
Biðst afsökunar og lætur sig hverfa af X - Hvatti til að kjarnorkuvopn væru gerð klár
Heimir Már Pétursson framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins hefur beðist afsökunar á því að hafa hvatt forseta Frakklands til að senda hermenn ti...
Olíurisarnir græða stórfé á stríðinu í Mið-Austurlöndum
📅 30.10.2026 👁️ 3
Olíurisarnir græða stórfé á stríðinu í Mið-Austurlöndum
Olíurisarnir græða stórfé á stríðinu í Mið-Austurlöndum Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum...
Mikilvægt að leyfa starfsfólki að kveðja með reisn
📅 30.10.2026 👁️ 3
Mikilvægt að leyfa starfsfólki að kveðja með reisn
Atvinnuleysi er að aukast og fréttir af uppsögnum verða tíðari. Reykjavíkurborg sagði upp 50 manns í hópuppsögn í vikunni og hefur lagt niður 130 stöð...
Borgarbókasafninu gert að skera niður um 5%
📅 30.10.2026 👁️ 3
Borgarbókasafninu gert að skera niður um 5%
Borgarbókasafninu hefur verið gert að skera niður um 85 milljónir króna. Borgarbókaverði var tilkynnt um aðhaldskröfuna í september og hún tilkynnti s...
Hitafundur á Raufarhöfn
📅 30.10.2026 👁️ 3
Hitafundur á Raufarhöfn
Franska fyrirtækið Qair efndi til kynningarfundar á samfélagslegum og umhverfisáhrifum sem að vindorkuver á Hnotasteini myndi hafa á nærumhverfið. Fun...
Stefáni féllust hendur þegar hann frétti hvaða tveimur var sagt upp: „Þetta má hreinlega ekki gerast!“
📅 30.10.2026 👁️ 3
Stefáni féllust hendur þegar hann frétti hvaða tveimur var sagt upp: „Þetta má hreinlega ekki gerast!“
Stefán Pálsson borgarfulltrúi Vinstrisins segir að honum hafi fallist hendur við að frétta að Reykjavíkurborg hafi sagt upp tveimur af þremur starfsmö...
„Talsmönnum þessara ofstækis-skoðanna á ekki að hleypa inn í land okkar!“
📅 30.10.2026 👁️ 4
„Talsmönnum þessara ofstækis-skoðanna á ekki að hleypa inn í land okkar!“
Hjörtur Magni Jóhannsson prestur Fríkirkjunnar segir að skoðanir pakistanska klerksins og sharíadómarans Muhammad Taqi Usmani vera eitur, talsmenn slí...
Heimir Már biðst afsökunar og lokar aðgangi sínum á X
📅 30.10.2026 👁️ 3
Heimir Már biðst afsökunar og lokar aðgangi sínum á X
Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri og upplýsingafulltrúi þingflokks Flokks fólksins, hefur beðist afsökunar á orðalagi athugasemdar þar sem hann h...
Lækka laun kjörinna fulltrúa og bæjarstjóra
📅 30.10.2026 👁️ 4
Lækka laun kjörinna fulltrúa og bæjarstjóra
Bæjarstjórn sveitarfélagsins Stykkishólms samþykkti í gær tillögu forseta bæjarstjórnar um tímabundnar launalækkanir kjörinna fulltrúa.Laun bæjarfullt...
Úkraínumenn sagðir leggja aftur til atlögu að rússneskum olíuhreinsistöðvum
📅 30.10.2026 👁️ 3
Úkraínumenn sagðir leggja aftur til atlögu að rússneskum olíuhreinsistöðvum
Úkraínumenn hafa að nýju hafið árásir á ný á olíuhreinsunarstöðvar í Rússlandi eftir stutt hlé. Þetta sagði varaforsætisráðherra Rússlands í dag og sa...
Leó fyrstur páfa til að greiða atkvæði í bandarískum kosningum
📅 30.10.2026 👁️ 3
Leó fyrstur páfa til að greiða atkvæði í bandarískum kosningum
Leó páfi XIV hefur greitt atkvæði utan kjörfundar í þingkosningum á miðju kjörtímabili Bandaríkjaforseta. Kjördagur er næsta þriðjudag. Páfinn er fyrs...
Crypto giant Binance attempting to recover $6.3bn stolen in hack linked to North Korea
📅 30.10.2026 👁️ 2
Crypto giant Binance attempting to recover $6.3bn stolen in hack linked to North Korea
The cyber-attack, which the company describes as complex, is believed to be the largest ever of its kind.
Veltir fyrir sér hvort Við­skipta­ráð haldi að Ís­lendingar séu hálf­vitar - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
Veltir fyrir sér hvort Við­skipta­ráð haldi að Ís­lendingar séu hálf­vitar - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í aðsendri grein Andra Snæs á Vísi. Tilefnið er skýrsla Viðskiptaráðs undir yfirskriftinni: Kraftur í kortunum: lei...
Nablinn leggur bleyjuna á hilluna - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 3
Nablinn leggur bleyjuna á hilluna - Vísir
Andri greinir frá þessum tíðindum á Fésbókinni með fallegri kveðjum og skemmtilegri myndaröð af samstarfsfélögum og skjólstæðingi. „Eftir tæplega átta...
Nablinn hættur á leik­skóla - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 4
Nablinn hættur á leik­skóla - Vísir
Andri greinir frá þessum tíðindum á Fésbókinni með fallegri kveðjum og skemmtilegri myndaröð af samstarfsfélögum og skjólstæðingi. „Eftir tæplega átta...
Heimir Már biðst af­sökunar á orðum sínum - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 4
Heimir Már biðst af­sökunar á orðum sínum - Vísir
Heimir Már skrifaði í gær ummæli við færslu Emmanuel Macron Frakklandsforseta þar sem hann hvatti forsetann til að senda hermenn til Úkraínu og hafa k...
Receptionist among three arrested after €200 stolen from hotel room in Maspalomas
📅 30.10.2026 👁️ 2
Receptionist among three arrested after €200 stolen from hotel room in Maspalomas
Three people have been arrested after €200 was allegedly stolen from a holidaymaker’s hotel room in Maspalomas, Gran Canaria, in a plot police believe...
Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumar­búðir kóngafólksins - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumar­búðir kóngafólksins - Vísir
Epstein og Maxwell eru talin hafa heimsótt kastalann ásamt Mountbatten-Windsor sem áður var þekktur sem Andrés prins. Epstein lést 66 ára gamall í fan...
Russell Brand accusers 'haunted' for years by alleged crimes, court hears
📅 30.10.2026 👁️ 2
Russell Brand accusers 'haunted' for years by alleged crimes, court hears
The women involved in the case had "nothing to gain" apart from "some closure", the prosecutor says.
Icelandair sendi flugmönnum tillögur í kjaradeilunni fram hjá FÍA
📅 30.10.2026 👁️ 3
Icelandair sendi flugmönnum tillögur í kjaradeilunni fram hjá FÍA
Icelandair hefur sent flugmönnum félagsins tillögur sínar að lausn kjaradeilu við Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA).Jón Þór Þorvaldsson, formaður...
Hroll­vekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 3
Hroll­vekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna - Vísir
Fyrir átta árum leitaði Vísir til Páls Óskar eftir hrollvekjumeðmælum. Hann mælti þar með fimm hrollvekjum sem væru skylduáhorf og svo fimm til viðbót...
Reiði meðal lögreglumanna
📅 30.10.2026 👁️ 4
Reiði meðal lögreglumanna
Hótunum í garð lögreglumanna hefur fjölgað síðustu árin en þær virðast þó hafa litlar sem engar afleiðingar í för með sér. Lögreglumenn eru margir rei...
„Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
„Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ - Vísir
Eins og greint hefur verið frá misheppnaðist aftaka Pike í Tennesse-ríki í september. Hún var flutt á sjúkrahús í flýti og raknaði úr rotinu í byrjun ...
Christa Pike segist mikið kvalin andlega og líkamlega
📅 30.10.2026 👁️ 2
Christa Pike segist mikið kvalin andlega og líkamlega
Christa Pike hefur tjáð sig opinberlega í fyrsta skipti síðan hún 30. september lifði af tvær líflátstilraunir á dauðadeild fangelsins í bandaríska rí...
Wolt kærir hótanir til lög­reglu - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 4
Wolt kærir hótanir til lög­reglu - Vísir
„Við líðum það ekki og verður tekið á hótunum og áreitni í gegnum regluvörsluferli okkar, auk þess sem þær hafa verið tilkynntar til lögreglu.“ Christ...
Fylkisstjórinn gefur sterka vísbendingu um framtíð Christu Pike
📅 30.10.2026 👁️ 2
Fylkisstjórinn gefur sterka vísbendingu um framtíð Christu Pike
Bill Lee, fylkisstjóri Tennessee, hefur nú loks gefið vísbendingar um framtíð hinnar dauðadæmdu Christu Pike eftir misheppnaða aftökutilraun í septemb...
Einstæð móðir vann 45 milljónir eftir erfiða tíma: „Loksins gerist eitthvað gott!“
📅 30.10.2026 👁️ 3
Einstæð móðir vann 45 milljónir eftir erfiða tíma: „Loksins gerist eitthvað gott!“
Þrefaldur pottur upp á rúmar 45 milljónir króna fór svo sannarlega á góðan stað síðasta laugardag. Rúmlega fimmtug einstæð móðir með nokkur börn sem h...
Örn spyr hvers vegna Gildi sé að hækka vextina: „Fé sem sjóðfélagarnir eiga sjálfir“
📅 30.10.2026 👁️ 2
Örn spyr hvers vegna Gildi sé að hækka vextina: „Fé sem sjóðfélagarnir eiga sjálfir“
Örn Pálsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, skorar á Gildi lífeyrissjóð að lækka þegar í stað vexti á óverðtryggðum sjóðfé...
US tech stocks see sharp falls over AI cost fears
📅 30.10.2026 👁️ 3
US tech stocks see sharp falls over AI cost fears
Shares in Intel continue to fall while the tech-heavy Nasdaq opens at its lowest level in more than two months.
US tech stocks see sharp falls as AI spending nears $1tn
📅 30.10.2026 👁️ 2
US tech stocks see sharp falls as AI spending nears $1tn
Shares in Intel continue to fall while the tech-heavy Nasdaq opens at its lowest level in more than two months.
Opin augu: Tíðni ákæra hjá ríkisborgurum MENAPT-ríkja reiknast margfalt hærri
📅 30.10.2026 👁️ 3
Opin augu: Tíðni ákæra hjá ríkisborgurum MENAPT-ríkja reiknast margfalt hærri
Opin augu: Tíðni ákæra hjá ríkisborgurum MENAPT-ríkja reiknast margfalt hærri Fréttin30. október 2026Innlent, RannsóknLeave a Comment Tíðni ákæra hjá ...
Móðurfélag Símans fær að kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi
📅 30.10.2026 👁️ 1
Móðurfélag Símans fær að kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi
Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Ása, móðurfélags Símans, á Öryggismiðstöð Íslands og Opnum kerfum. Samkeppniseftirlitið heimilar kaupin á gru...
Ungverjaland tekið í sátt hjá Uppbyggingarsjóði EES-ríkjanna
📅 30.10.2026 👁️ 1
Ungverjaland tekið í sátt hjá Uppbyggingarsjóði EES-ríkjanna
Það var nokkuð stór stund í Búdapest síðasta mánudag, þegar fulltrúar EES-ríkjanna, þar á meðal Espen Barth Eide utanríkisráðherra Noregs, staðfestu s...
Police watchdog to investigate Met over letter about Meghan's father
📅 30.10.2026 👁️ 2
Police watchdog to investigate Met over letter about Meghan's father
The police force faces probe over its handling of a letter containing allegations about Meghan's father.
Hasssmyglari handtekinn meðan vígsluathöfn stóð sem hæst
📅 30.10.2026 👁️ 3
Hasssmyglari handtekinn meðan vígsluathöfn stóð sem hæst
Hálfsextugur karlmaður var handtekinn í gær meðan á vígsluathöfn nýja alþjóðaflugvallarins við grænlenska bæinn Ilulissat stóð.Danska ríkisútvarpið se...
Boðið upp á bólu­setningar í apó­tekum í fyrsta sinn - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
Boðið upp á bólu­setningar í apó­tekum í fyrsta sinn - Vísir
Með nýju fyrirkomulagi verður fólki auðveldað að nálgast bólusetningar í sínu nærumhverfi. Markmiðið er að bæta aðgengi að þjónustu, fjölga þeim stöðu...
Örn Bárður Jónsson skrifar: Um óeirðir og róstur – Heimur, hamingja, hugmyndafræði, hamfarir
📅 30.10.2026 👁️ 3
Örn Bárður Jónsson skrifar: Um óeirðir og róstur – Heimur, hamingja, hugmyndafræði, hamfarir
Laugardaginn 17. október sl. ræddi ég við dóttur mína sem býr á meginlandi Evrópu í myndsíma. Hún var þá í sambandi við dóttur sína sem er við nám í a...
Svarar Njáli Trausta ekki vegna þjóðaröryggis
📅 30.10.2026 👁️ 4
Svarar Njáli Trausta ekki vegna þjóðaröryggis
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra svaraði ekki efnislega fyrirspurn Njáls Trausta Friðbertssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um fj...