Finnski flugherinn varð í rauðabítið var við að ókennilegt flygildi sveimaði innan lofthelginnar yfir Virolahti nærri landamærunum að Rússlandi. Í yfirlýsingu varnarmálaráðuneytis Finnlands segir að hvorki sé vitað hverrar gerðar dróninn var né hvaðan hann kom. Hann fór fljótlega út úr lofthelginni aftur að sögn ráðuneytisins og landamæraeftirlitinu hefur verið falið að rannsaka málið.
Landamæri Finnlands og Rússlands eru alls um 1.340 kílómetra löng. Rússneska varnarmálaráðuneytið tilkynnti í morgun að á fjórða hundrað úkraínskum drónum hefði verið tortímt víðs vegar meðfram vesturlandamærum Rússlands.