Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í dag eftir að ekið var á barn í Hafnarfirði. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að ökumaðurinn hafi yfirgefið vettvang eftir að hafa ekið á barnið. Lögreglan hafi stöðvað hann við akstur skömmu síðar.
Upplýsingar um líðan barnsins liggja ekki fyrir. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sjúkrabíll kallaður til en enginn var fluttur til aðhlynningar.
Varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir að ekið hafi verið á barnið á gatnamótum Reykjanesbrautar og Hamrabergs í Hafnarfirði.
Fréttin hefur verið uppfærð.