Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, er nú staddur á Grænlandi í opinberum erindagjörðum sem þingmaður og formaður Vestnorræna ráðsins.
Jón kom til Grænlands á þriðjudag og hefur hann lent í ýmsum ævintýrum eins og lesa má í færslum hans á Facebook. Í einni slíkri sem birtist í gærkvöldi sagði hann frá óvenjulegri reynslu sinni þegar hann vaknaði fyrsta daginn sinn í Qaqortoq á Suður-Grænlandi.
„Ég hrökk upp við það að hurðin á hótelherberginu mínu var opnuð. Það var sérkennilegt vegna þess að ég mundi að ég hafði læst henni í gærkvöldi. Þegar ég reis upp við dogg og kíkti til dyra sá ég að hún var lokuð og mig hafði greinilega bara verið eitthvað að dreyma þannig að ég lagðist aftur á koddann og sofnaði strax aftur,” segir Jón sem upplifði síðan annað dularfullt augnablik.
„Ekki veit ég hvað ég hafði sofið lengi þegar ég vaknaði aftur upp, nú við það að einhver sló mig þéttingsfast í hægri öxlina að ég hrökk upp með andfælum. En það var enginn sjáanlegur og ég aleinn í herberginu. Ég leit á klukkuna og hún var rúmlega sjö en ég hafði stillt vekjarann á 7.30,” segir Jón og bætir við:
„Ég hef aðeins einu sinni áður upplifað nokkuð í líkingu við þetta. Það var fyrir nokkrum árum en þá lá ég sofandi í rúminu heima þegar ég var sleginn fast í annað lærið.“
Ef marka má færslu Jóns, þar sem hann segir frá ævintýrum gærdagsins, er hann yfir sig hrifinn af Grænlandi.
„Aftur og aftur fékk ég gæsahúð af hrifningu. Þetta var ógleymanlegur dagur, þrunginn andlegum og tilfinningalegum upplifunum, hugsunum og hugrenningatengslum sem ég á eflaust eftir að þurfa tíma til að vinna úr. Eins skringilega og það kann að hljóma þá er það oft svo að þegar við horfumst í augu við fortíðina og rýnum í hana, jafnvel 1000 ár aftur í tímann, þá fer okkur að birtast mynd. Og þegar hún skýrist þá sjáum við að hún er spegilmynd okkar sjálfra.“