Lögreglumenn handtóku í gærkvöld eða nótt öfurölvi mann sem reyndi að opna dyr bíla á ferð.
Hann var vistaður í fangaklefa uns hann getur verið meðal almennings, eins og það er orðað í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglumenn jöfnuðu ágreining á staðnum eftir að farþegi leigubifreiðar í miðborginni neitaði að greiða fyrir farið og olli skemmdum á bílnum.
Innbrot í verslun í Vesturborginni er til rannsóknar og þar var einnig tilkynnt um símastuld á sjúkrastofnun. Eitthvað var um ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu og einn ökumaður hlaut sekt fyrir að aka á 142 kílómetra hraða þar sem hámarkshraðinn er áttatíu.